Erfðamengi Roseomonas : hefur ólíkt umhverfi áhrif á mismunandi seytikerfi fyrir lífýruefni?
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Með tilkomu erfðamengjarannsókna hefur orðið mögulegt að komast að því hver virkni gena og próteina er út frá erfðamengjaröðum. Lífýruefni eru tvíleysnar sameindir sem eru framleiddar af örverum og hafa notagildi á mörgum sviðum sem tengjast líftækni. Roseomonas er ættkvísl sem hefur ekki verið mikið rannsökuð en einangrast gjarnan úr yfirborðslagi staðins ferskvatns (neuston). Til þess að geta lifað í þessu lagi þurfa örverurnar að yfirvinna háa yfirborðsspennu vatns en það gera þær með því að framleiða lífýruefni og mynda örveruþekju. \nÍ þessu verkefni var ákveðið að skoða erfðamengi Roseomonas með því markmiði að athuga hvort það væri tenging á milli mismunandi seytikerfa fyrir lífýruefni með tilliti til ólíkra umhverfisaðstæðna en Roseomonas hefur verið einangruð úr ýmis konar umhverfi. Notast var við lífupplýsingafræðileg forrit og vefsíður líkt og NCBI, MEGA, GView Server og KEGG við greininguna. \nÞað fannst tenging á milli seytikerfi af týpu VI (T6SS) og myndun örveruþekju hjá Pseudomonas aeruginosa en hluti af Roseomonas tegundunum var með sama kerfi til staðar og P. aeruginosa notar til þess að seyta lífýruefnum og mynda örveruþekju. Ekki fannst annað seytikerfi í þessum tegundum sem hægt var að tengja við lífýruefni og því var einungis borið saman umhverfisaðstæður hjá þeim bakteríum sem voru með T6SS til staðar. Stór hluti af þeim tegundum komu úr jarðvegi eða vatni en við samanburð á öllum tegundum kom í ljós að nokkrar af þeim voru með líkara erfðamengi sín á milli heldur en tegundir úr annars konar umhverfi. \nHægt er fullyrða að hluti af Roseomonas tegundum geti framleitt lífýruefni en að ná að bera kennsl á fleiri örverur sem framleiða lífýruefni getur verið hagnýtt fyrir rannsóknir á bæði sviði heilbrigðis- og umhverfislíftækni. Niðurstöður benda til þess að ólíkt umhverfi gæti haft áhrif en gera þurfi fleiri rannsóknir með fleiri tegundum úr hverju umhverfi til þess að geta sett fram nánari fullyrðingar
Source: Skemman
Author: Hulda Karen Ingvarsdóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Molecular Biology
Domain: Life Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7056541561
