Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Tilgangurinn með þessari rannsókn var að kanna ánægju með jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Þegar rannsóknin fór fram var stór hluti af íslenskum vinnumarkaði að vinna starf sitt í fjarvinnu vegna heimsfaraldurs COVID-19. Í því ljósi ákvað höfundur að skoða hvort fjarvinna hefði áhrif á ánægju með jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Auk þess var upplifun þátttakenda á félagslegum stuðningi í fjarvinnu einnig skoðaður ásamt muninum á vellíðan milli karla og kvenna. \nÍ rannsókninni tóku þátt alls 315 þátttakendur. Notast var við megindlega aðferðafræði og var hannaður spurningalisti sem dreift var í gegnum samfélagsmiðilinn Facebook með rafrænu hentugleikaúrtaki. Um er að ræða mælitæki sem mælir ánægju með jafnvægi milli vinnu og einkalífs (e. satisfaction with work-family balance) og var fyrirmyndin rannsókn Valcour (2007) ásamt rannsókn Hjördísar Sigursteinsdóttur (2010) um félagslegan stuðning (e. social support). Stutta útgáfan af velsældarkvarðanum (e. Short Warwick-Edinburgh Mental Wellbeing Scale, SWEMWBS) var einnig notaður í þessari rannsókn en Embætti landlæknis notast til dæmis reglulega við þennan kvarða til að mæla vellíðan Íslendinga. Tíðni fjarvinnu þátttakenda var mæld á þriggja mánaða tímabili og stuðst var við rannsókn Zhang o.fl. (2020) í því sambandi. \nHelstu niðurstöður voru þær að jákvæð fylgni var á milli vellíðanar og ánægju með jafnvægi milli vinnu og einkalífs, það var jákvæð fylgni milli félagslegs stuðnings og ánægju með jafnvægi milli vinnu og einkalífs, að auki var jákvæð fylgni milli félagslegs stuðnings og vellíðanar. Við nánari athugun reyndist ekki marktækur munur á ánægju með jafnvægi milli vinnu og einkalífs hjá þátttakendum sem voru í fjarvinnu og þeirra sem ekki voru í fjarvinnu. Hins vegar upplifðu konur marktækt meiri ánægju með jafnvægi milli vinnu og einkalífs en karlar. Það reyndist ekki marktækur munur á félagslegum stuðningi í fjarvinnu. Niðurstöður úr velsældarkvarðanum sýndu að konur upplifðu marktækt meiri vellíðan en karlar. Að auki sýndu niðurstöður fram á að ánægja með jafnvægi milli vinnu og einkalífs og félagslegur stuðningur spáir fyrir um vellíðan. \n \nLykilorð: Fjarvinna, jafnvægi milli vinnu og einkalífs, félagslegur stuðningur og vellíðan.
Source: Skemman
Author: Guðný Jónsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7056546594
