Work

Endurskilgreining á lífi og sjálfi : reynsla fólks af því að fá hjartaáfall í kringum fimmtugt

Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur rannsóknar: Hjartasjúkdómar er ein aðal dánarorsök í heiminum. Lítið er vitað um líðan og sjálfsmynd eftir hjartaáfall og hvernig reynsla það er að fá hjartaáfall í kringum fimmtugt. \nTilgangur rannsóknar: Að efla þekkingu og dýpka skilning á þeirri reynslu að fá hjartaáfall í kringum fimmtugt. \nAðferðarfræði: Notuð var fyrirbærafræðileg aðferð. Tekin voru eintaklings viðtöl við 11 þátttakendur, þar af 3 konur. Meðalaldur þátttakenda var 48 ár. \nNiðurstöður: Yfirþema rannsóknarinnar var endurskilgreining á lífi og sjálfi. Niðurstöður sýna að hjartaáfall hafði mikil áhrif á sjálfsmynd þátttakenda. Að vera á besta aldri og komin með „gamalmennasjúkdóm“ hafði áhrif á upplifun þátttakenda á margan hátt. Fyrsta árið eftir hjartaáfallið litu þátttakendurnir frekar á sig sem hjartasjúklinga, en þegar lengra leið frá hjartaáfallinu þá breyttist sjálfsmyndin aftur og fólk upplifði sig frekar heilbrigt með þetta vandamál. Hjá tæplega helmingi þátttakenda var hjartaáfallið vangreint sem einhver annar sjúkdómur vegna ungs aldurs þeirra. Streita reyndist vera aðaláhættuþáttur fyrir hjartaáfalli hjá þátttakendum. Þeir þátttakendur sem upplifðu andlega vanlíðan eftir hjartaáfallið hafði sú vanlíðan frekar hvetjandi áhrif á lífstílsbreytingu en að vera hindrun. Hjá nánast öllum þátttakendum varð vendipunktur eftir hjartaáfallið til betri lífstíls. Þreyta og slappleiki voru einkenni sem flestir þátttakendur upplifðu við hjartaáfallið, fæstir fengu þennan verk sem mest fræðsla er um eða verk í brjóstið sem leiðir út í vinstri handlegg. \n \nÁlyktun: Þessar niðurstöður sýna mikilvægi þess að fræða heilbrigðisstarfsfólk og almenning um öll einkenni hjartaáfalls, ekki bara bein einkenni frá brjóstkassa. Mikilvægt er fyrir heilbrigðisstarfsfólk að vera vakandi fyrir andlegri líðan eftir hjartaáfall, ekki er nóg að afhenta fræðslubækling heldur þarf líka að vera einstakingsfræðsla. Mikilvægt er að finna matskvarða til að meta streitu sem hentar sem viðbót við annað mat þegar skimað er fyrir áhættu á að einstaklingur fái hjartaáfall. \nLykilhugtök: Hjartaáfall, kvíði, þunglyndi, hræðsla, sjálfsmynd, einkenni hjartaáfalls, fyrirbærafræði, viðtöl, streita
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7056566615
Cites: 48
Cited by:
Related to: 10