Work

Eru tengsl milli rótaveirusýkinga hjá ungbörnum og astma, ofnæmis eða sýkinga síðar í barnæsku?

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Algengasta orsök bráðra iðrasýkingar hjá ungum börnum er rótaveirusýking. Rótaveirusýkingar geta haft margvísleg áhrif á börn á meðan veikindum stendur og mögulega til lengri tíma. Mögulegt er að slæm iðrasýking geti raskað örveruflórunni, en vísbendingar benda til að slík röskun geti haft áhrif á þroska ónæmiskerfisins. Markmið rannsóknarinnar var að meta hvort börn sem greinast með rótaveirusýkingu snemma á ævinni séu líklegri til að greinast með astma og ofnæmi og séu móttækilegri fyrir sýkingum en börn sem greinast ekki. \n \nEfniviður og aðferðir: Til skoðunar voru allar rótaveirugreiningar hjá börnum á fyrsta aldursári á tímabilinu 2012 – 2021. Til samanburðar voru fundin tvö viðmið af handahófi sem fæddust sama dag. Hóparnir voru bornir saman með tilliti til ICD-10 greiningarkóða á árunum 2013 - 2022 fyrir astma- og hvæsiöndun, ofnæmi og algengar sýkingar. \n \nNiðurstöður: Í rannsókninni voru 105 rótaveirutilfelli og 210 í samanburðarhópi. Meðalfjöldi valdra ICD-10 greiningarkóða á barn var hærri hjá rótaveiruhópi (p=0,040). Greiningar á astma voru sambærilegar milli hópanna (p=0.42). Á tímabilinu var marktækt hærra hlutfall ofnæmisgreininga í rótaveiruhópnum (p=0,046). Greiningar á bráðum efri öndunarfærasýkingum voru marktækt fleiri í rótaveiruhópnum (p = 0,0004), auk þess var marktækur munur á nýgengi (p=0,019). Eyrnabólgur voru marktækt fleiri í rótaveiruhópnum samanborið við viðmið (p=0,0001), en ekki var marktækur munur á nýgengi. Rótaveiruhópur var með marktækt hærra nýgengi lungnabólgu (p=0,024), en ekki var marktækur munur á meðalfjölda lungnabólgugreininga. \n \nÁlyktun: Út frá niðurstöðunum má álykta að rótaveirusýkingar ungbarna á fyrsta aldursárinu hafi möguleg tengsl við hættu á bráðum efri og neðri öndunarfærasýkingum, og ofnæmi síðar meir.
Source: Skemman
Author: Auður Indriðadóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7056574977
Cites: 101
Cited by:
Related to: 10