Work

Félagsleg þátttaka þroskahamlaðra ungmenna. Þátttaka í skólum og aðkoma félagsráðgjafa

Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Ritgerð þessi fjallar um félagslega þátttöku þroskahamlaðra ungmenna í grunn- og framhaldsskólum. Til þess að skilja þá stöðu sem þroskahamlaðir hafa í dag er mikilvægt að hafa vitneskju um þá baráttu sem átti sér áður en fatlað fólk fékk þau réttindi sem nú eru í gildi. Lengi vel var þroskahömluðum haldið utan við samfélagið og það gilti líka um menntun þroskahamlaðra barna. Fötluð börn voru vistuð á stofnanir og fengu ekki aðgang í almenna skóla. Með skóla án aðgreiningar er átt við að öll börn eigi rétt til skólagöngu og menntunar óháð líkamlegri eða andlegri fötlun. Þó að þroskahömluðum nemendum sé heimilt að stunda nám í almennum skólum standa þeir oft utan við félagslífið sem á sér þar stað. Þroskahömluð ungmenni fá síður tækifæri til að taka þátt og upplifa með jafnöldrum sínum en það getur verið vegna takmarkaðrar félagsfærni. Sérstaklega er hætt við að þroskahömluð börn einangrist þegar komið er á unglingsár en þá flækjast samskipti töluvert. \nMeð heildarsýn að leiðarljósi hafa skólafélagsráðgjafar mikilvægt hlutverk í að vinna að bættri félagsfærni nemenda og skapa þeim tækifæri til þess að taka þátt í félagslífi innan skólans. Skólafélagsráðgjafar geta starfað sem tengiliðir skólans við heimili og leiðbeint foreldrum í að hvetja börn til þátttöku og aukins sjálfstæðis.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7056652612
Cites: 22
Cited by:
Related to: 10