Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Meginmarkmið rannsóknarinnar var að kanna hvort að einungis ein skilaboð sem innihéldu upplýsingar um hagrætt sjálfstraust dygðu til að auka heldni við alhliða heilsuprógramm. 62 þátttakendur tóku þátt í alhliða heilsubætandi prógrammi í smáforritinu Sidekick Health. Þátttakendur voru heilbrigðir háskólanemar sem svöruðu auglýsingu um að taka þátt í rannsókn sem hjálpar fólki að byggja upp heilbrigðar venjur. Þátttakendur svöruðu spurningalista sem innihélt meðal annars almennan sjálfstrausts kvarða (GSE). Notast var við millihópasnið og hlaut tilraunahópur skilaboð sem auka áttu sjálfstraust. Ekki var marktækur munur á sjálfstrausti við upphaf rannsóknarinnar. Á degi 7 var ekki marktækur munur á milli hópanna en á degi 21 var samanburðarhópurinn marktækt virkari. Ekki kom fram marktækur munur þegar heildar meðferðarheldni. Ein skilaboð í upphafi alhliða heilsubætandi prógramms duga ekki til að auka meðferðarheldni né virkni og höfðu frekar öfug áhrif þegar virkni á degi 21 var mæld. Kanna má hvort endurtekin skilaboð gætu skilað árangri og kanna hvernig skilaboð hafa áhrif á raunverulegt sjálfstraust.
Source: Skemman
Author: Andrea Björk Karelsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: General Health Professions
Field: Health Professions
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7056666545
