Work

Flæðandi háskólanemi : hefur þú trú á eigin sköpunargáfu?

Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Háskólanemum er ráðlagt að temja sér gagnrýna hugsun, sjálfstæði og að vera skapandi þegar kemur að rannsóknum. En hafa háskólanemar trú á eigin sköpunargáfu? Trú á gáfuna sem býr yfir þeim hæfileika að koma með nýjar, frumlegar og einstakar lausnir. Í þessari rannsókn er fyrirbærið sköpunargáfa skoðuð. Notuð var eigind- og megindleg aðferð til að skoða skapandi hugsun og viðhorf íslenskra háskólanema til sköpunar, í þeim tilgangi að svara spurningunni: Hafa háskólanemar trú á eigin sköpunargáfu? Sköpunarpróf (n=22) sýndi sterk jákvæð tengsl á milli flæðis hugmynda við tíma og frumleika. Þessar niðurstöður benda til þess að ef háskólanemar gefa sér tíma til að láta hugmyndir flæða eru líkur á því að frumlegri hugmyndir kvikni sem gætu leitt til einstakra lausna. Niðurstöður viðhorfskönnunar (n=104) sýndu að háskólanemar telja sig vera frekar skapandi og hafa trú á eigin sköpunargáfu.
Source: Skemman
Author: Katrín Jónsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7056685262
Cites: 18
Cited by:
Related to: 10