„Fólk er svolítið eins og vatnið, það fer alltaf auðveldustu leiðina.“ Innleiðingarferli upplýsingakerfa
Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar er að fá innsýn í innleiðingarferli upplýsingakerfa. Reynt er að varpa ljósi á þá þætti sem skipta mestu máli fyrir vel heppnað ferli. Þar að auki er innleiðing upplýsingakerfa skoðuð út frá aðferðum breytingastjórnunar. \nRannsóknarspurningar voru eftirfarandi: Hvaða þættir í innleiðingarferli á upplýsingakerfum stuðla að því að ferlið sé sem árangursríkast og hvers vegna? Hvernig er hægt að nýta aðferðir breytingastjórnunar við innleiðingarferli á upplýsingakerfum? Notaðar voru eigindlegar rannsóknaraðferðir en tekin voru alls átta hálf-stöðluð djúpviðtöl. Tveir viðmælenda starfa hjá hugbúnaðar- og ráðgjafafyrirtækjum en auk þeirra voru tekin viðtöl við þrjá viðskiptavini hvors þeirra. \nNiðurstöður benda til þess að góður undirbúningur og ítarleg þarfagreining, kennsla og þjálfun, stuðningur stjórnenda og samheldni starfsfólks séu þeir þættir sem skipta mestu máli svo að innleiðingarferli heppnist eins og best verður á kosið. Aðferðir breytingastjórnunar styðja við innleiðingaferli á upplýsingakerfum en þær beina sjónum að því hvernig hægt sé að huga að mannlegum þáttum í breytingum. Í þeim er meðal annars kveðið á um hvernig hægt sé að leiða starfsfólk í gegnum ferlið með góðri upplýsinga¬gjöf, hvatningu og samheldni.
Source: Skemman
Author: Sigurrós Oddný Kjartansdóttir 1989
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
Keywords: organizational culture, change management, organizational change, information systems, information system implementation, staff support, human resource management, organizational learning, organizational communication, organizational culture decline, organizational culture maintenance, organizational culture development
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7056702258
