Work

Heilabilun og hinn ósýnilegi sjúklingur. Áhrif umönnunar á maka ástvinar með heilabilun

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Viðfangsefni þessara ritgerðar er heilabilun og áhrif sjúkdómsins á maka og nánustu aðstandendur þeirra sem með hann greinast. Markmið ritgerðarinnar er að skoða og fá innsýn í upplifun maka af því að takast á hendur óformlegt umönnunarhlutverk gagnvart ástvini sínum sem veikist af heilabilun og fá innsýn inn í þær breytingar sem verða á lífi þeirra í kjölfarið. Einnig að skoða hvernig félagsráðgjafar geta komið til aðstoðar, bæði einstaklingnum sem greinst hefur með heilabilun og umönnunaraðila hans. Til að ná settu markmiði leitaðist höfundur eftir því að svara eftirfarandi spurningum: Hvaða áhrif hefur það á líf og aðstæður maka þegar einstaklingur greinist með/er með heilabilun? Hvernig getur þekking og aðkoma félagsráðgjafa bætt aðstæður einstaklinga með heilabilun og aðstandendur þeirra? Fjölbreytt úrval heimilda var notað til að svara rannsóknarspurningunum. Höfundur studdist meðal annars við ritrýndar greinar, fyrri rannsóknir á viðfangsefninu, fræðigreinar, lög og kenningar ásamt reglugerðum. \nMaki einstaklings með heilabilun er þeirra helsti umönnunaraðili sem gerir hann fyrir vikið viðkvæmari fyrir andlegum og líkamlegum heilsubresti. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar undirstrika mikilvægi þess að efla stuðning við aðstandendur með það að leiðarljósi að takmarka þau neikvæðu áhrifi sem umönnunarhlutverkið hefur í för með sér.
Source: Skemman
Author: Hanna Guðrún Gestsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7056721264
Cites: 54
Cited by:
Related to: 10