Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Þessi rannsóknaráætlun er lokaverkefni til B.S. prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur hennar er að kanna hver reynsla íslenskra feðra er af fæðingarþunglyndi. Fæðingarþunglyndi mæðra er vel þekkt viðfangsefni og eru þær skimaðar í ung- og smábarnavernd. Þrátt fyrir að erlendar rannsóknir sýni að 4-25% feðra fái einnig fæðingarþunglyndi eru þeir ekki skimaðir kerfisbundið og virðist fæðingarþunglyndi feðra því ekki viðurkennt vandamál hvorki á meðal heilbrigðisstarfsfólks né almennings hér á landi. Fæðingarþunglyndi feðra hefur neikvæð áhrif á samskipti við maka, tengslamyndun þeirra við barn sitt og á hegðun og líðan barnsins í framtíðinni. Ýmsir áhættuþættir virðast auka líkurnar á því að feður þrói með sér fæðingarþunglyndi. Fyrri saga um þunglyndi, meðgöngu- og/eða fæðingarþunglyndi móður, hjúskaparstaða, gæði sambands foreldra, aldur föður, kynþáttur, skortur á félagslegum stuðningi og dvöl barns á vökudeild getur allt átt þátt í að ýta undir vandann hjá feðrum. Fæðingarþunglyndi feðra ætti að vera hægt að greina og fyrirbyggja ef vilji er fyrir því í heilbrigðiskerfinu, foreldrum og börnum til góða. \nRannsóknaraðferðin sem notast verður við er eigindleg rannsóknaraðferð Vancouver-skólans í fyrirbærafræði. Þátttakendur verða íslenskir feður sem nýlega hafa eignast barn og er miðað við að barnið sé ekki eldra en 12 mánaða. Tekin verða djúpviðtöl og þau greind í þemu samkvæmt aðferðafræði Vancouver-skólans. \nHjúkrunarfræðingar eru í lykilstöðu til að sinna forvörnum og veita fræðslu til almennings um fæðingarþunglyndi feðra. Teljum við að með umfjöllun um málefnið sé betur hægt að koma til móts við og sinna þessum hóp feðra. \n \nLykilhugtök: fæðingarþunglyndi, faðir, maki, barn, fræðsla, hjúkrun
Source: Skemman
Authors: Linda Björk Jóhannsdóttir 1980, Sóley Smáradóttir 1988
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7056807272
