Gendered Security Challenges in the Arctic: Indigenous Women in Greenland and Implications for Sustainability, Gender Equality, and Human Security
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Ritgerð þessi fjallar um málefni á sviði kynjajafnréttis og öryggismála á Norðurslóðum og beinir athygli sinni sérstaklega að Grænlandi með feminískri samtvinnun og þverfaglegri nálgun. Með því að kanna þær öryggisáskoranir sem grænlenskar konur af frumbyggjaættum búa við og reynslu þeirra af kynjamisrétti kannar ritgerðin hvað það er sem ógnar mannöryggi (e. human security) þeirra. Með þverfaglegri nálgun þar sem hugtökin femínismi, mannöryggi og femínískt öryggi eru nýtt, setur ritgerðin fram þemagreiningu á sjö viðtölum sem tekin voru við konur af grænlenskum uppruna. Niðurstöðurnar sýna fram á að frumbyggjakonur á Grænlandi upplifa óöryggi af margvíslegum toga, svo sem ofbeldi, skort á sjálfstæði, og áhrifum nýlendustjórnar. Reynsla kvennanna einkennist af og eykur á kynjamisrétti sem er sýnilegt í rótgrónum kynjuðum staðalímyndum, áskorunum sem einkennast af stöðu þeirra sem kvenkyns frumbyggjar og ríkjandi karlmennsku. Afleiðingar þessa eru aukin jaðarsetning kvennanna og einangrun þeirra, andstætt alþjóðalögum líkt og Samningi Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum og Samningi Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi. Saman getur þetta haft neikvæð áhrif á framgang og þróun á sviði sjálfbærni á Norðurslóðum og samvinnu milli norðurslóðaríkja, ásamt frumbyggjahópum á svæðinu. Á heildina litið leggur þessi ritgerð, með nálgun sem byggir á mannöryggi og femínísku öryggi, áherslu á reynslu grænlenskra frumbyggjakvenna og framkvæmir tilviksrannsókn með niðurstöðum sjö viðtala. Niðurstöðurnar byggja þannig ofan á tímamótaskýrslu um stöðu kynjajafnréttis á Norðurslóðum sem styrkt var af Norðurskautsráðinu. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að forgangsraða mannöryggi og kynjajafnrétti á Norðurslóðum, sérstaklega í ljósi mikilvægi svæðisins í framtíðinni. Aðeins með því að tryggja konum öryggi og jafnrétti er mögulegt að vinna að sjálfbærari samfélögum á Norðurslóðum.
Source: Skemman
Author: Unnur Lárusdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Keywords: indigenous women, gender equality, human security, Arctic security, Greenland, gender-based violence, women's economic independence, neocolonialism, gender stereotypes, women's empowerment, gender-based violence prevention, European Convention on Human Rights, sustainability, women's rights, gender-based violence against women, women's participation in decision-making
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7056817775
