Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar var að bera saman niðurstöður af áhrifum áhugasviðskönnunarinnar Í leit að starfi á framhaldsskólanemendur þegar þær eru notaðar annað hvort með eða án faglegrar aðstoðar ráðgjafa. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð í formi hálfopinna viðtala og grunduð kenning nýtt við úrvinnslu og túlkun gagnanna. Af niðurstöðunum mátti greina að fyrirlögn áhugasviðskönnunarinnar bæði með og án aðstoðar gagnast þátttakendum. Þeir sem fengu enga aðstoð eyddu meiri tíma í að leita sér upplýsinga um áhugasvið og störf. Þeir sem fengu aðstoð töldu aðstoðina mikilvæga. Niðurstöður sýndu einnig áhrif áhugasviðskönnunarinnar á viðhorf þátttakendanna til mögulegs námsvals þeirra í framtíðinni. Könnunin kom þátttakendum að gagni, hún hjálpaði þeim til dæmis að skilja betur hvað fólst í draumastarfinu sem þau skráðu í upphafi áhugakönnunarinnar. Rannsóknin gefur til kynna að mikilvægt er að nota áhugasviðskannanir á meðal nemenda sem eru að hefja nám í framhaldsskóla þar sem það hjálpar þeim við náms- og starfsval.
Source: Skemman
Author: Heiða Björk Elísdóttir 1978
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Applied Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7056871485
