Work

Handboltaskóli HSÍ : úttekt á mælingum

Year: 2016
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða líkamlegt hreysti handknattleiksmanna á fjórtánda aldursári. Í kjölfarið var gerð úttekt á gögnunum og metið hvort framkvæmd og val á prófum hafi verið skynsamlegt út frá þeim niðurstöðum sem þau gáfu. Rannsóknin var lýsandi þversniðsrannsókn og fór fram dagana 12. - 14. júní 2015. Þátttakendurnir voru 118 og komu frá 19 félagsliðum. Fjöldi stráka var 65 (55,1%) og fjöldi stelpna 53 (44,9%). Þátttakendur framkvæmdu sex líkamshreystipróf: YoYo hlaupapróf, 505 snerpupróf, gripstyrkpróf, þriggja kíló-gramma boltaköst, lóðrétt stökk og langstökk án atrennu. Auk þess framkvæmdu þátttakendur tvö sérhæfð próf: Knattrak á milli keilna og skothraðamælingar. Einnig voru líkams-mælingar og var spurningalisti lagður fyrir. Úrvinnsla gagna fór fram í SPSS og Excel. Niðurstaða rannsóknarinnar var sú að þátttakendur í Handboltaskóla HSÍ voru að meðaltali slakari í öllum prófunum í samanburði við sambærilega hópa erlendis. Það var þó ein undantekning og var það í lóðréttu stökkunum. Út frá þessum niðurstöðum þarf að leggja meiri áherslu á líkamlega þjálfun yngri flokka á Íslandi. Samkvæmt niður-stöðunum er lagt til að taka boltakast með þungum bolta fram fyrir sig, SJ prófið og skothraðamælingarnar níu metrum frá markinu út úr prófasettinu.
Source: Skemman
Author: Hildur Björnsdóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7056904799
Cites: 18
Cited by:
Related to: 10