Work

Hvernig skilur þú vinnuna eftir í vinnunni heima hjá þér?: Árangur fjarvinnu á tímum COVID-19

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar var að fá innsýn í upplifun starfsfólks af fjarvinnu á tímum COVID-19, þar á meðal áhrif fjarvinnu á jafnvægið á milli vinnu og einkalífs starfsfólks og hver upplifun þess hafi verið á stjórnunarháttum vinnustaðar í heimsfaraldi og áhrifum þess á árangur fjarvinnu. Framkvæmd var eigindleg rannsókn á átta starfsmönnum fyrirtækja og stofnana af ýmsum toga bæði hjá hinu opinbera og í einkageiranum á Íslandi, fjórum konum og fjórum körlum sem áttu það öll sameiginlegt að eiga börn á leik- og/eða grunnskólaaldri og að hafa starfað í fjarvinnu á tímabili í COVID-19. Niðurstöður gefa til kynna að viðhorf til fjarvinnu var almennt jákvætt meðal starfsfólks, sem og til fjarvinnu að einhverju leyti í framtíðinni. Þegar aðkoma stjórnenda að fjarvinnu starfsfólks er skoðuð sýna niðurstöður að viðmælendur upplifðu skort á áhuga stjórnenda á ýmsum atriðum tengdum fjarvinnu, þ.á.m. aðstæðum starfsfólks og getu þeirra til að vinna heima en flestir viðmælendur unnu í alrými á heimili sínu við stofueða eldhúsborð eða jafnvel uppi í sófa. Einnig var upplifun starfsfólks sú að samtöl milli \nstjórnenda og starfsfólks hefðu yfirleitt verið á almennum nótum og lítið verið rætt um persónuleg málefni eins og líðan starfsfólks í fjarvinnu. Var líðan almennt verri hjá kvenkyns starfsmönnum sem fundu fyrir álagi í vinnu og einkalífi. Í fjarvinnu er jafnvægið á milli vinnu og einkalífs undir meira álagi, aukin hætta er á togstreitu milli þessara tveggja eininga vinnu og einkalífs vegna sítengingar við vinnu og truflunar frá aðstæðum á heimili. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að þeir viðmælendur sem voru með börn á heimilinu í fjarvinnu á tímabili vegna takmarkana á skólahaldi upplifðu frekar álag og áttu erfiðara með að aðskilja vinnu og einkalíf. Allir kvenkyns viðmælendur voru einir heima með börn á tímabili og upplifðu bæði meira álag í vinnu og í einkalífi en aðeins tveir af fjórum körlum voru með börn heima á tímabili í fjarvinnu og þeir upplifðu aðeins aukið álag í einkalífi en ekki í vinnu og voru þeir báðir með maka á heimilinu á því tímabili sem börnin voru heima.
Source: Skemman
Author: Eva Ingólfsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7057204140
Cites: 70
Cited by:
Related to: 10