Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Ytri og innri hvatning eru mikilvægir áhrifaþættir í námi. Tilgangur ritgerðarinnar er að opna huga lesenda fyrir gildi innri hvatningar í menntakerfinu með því að leita svara við rannsóknarspurningunni: „Hvaða áhrif hefur innri hvatning á nám?”. Skólakerfið er drifið áfram af ytri áhrifaþáttum. Verðlauna- og umbunarkerfi eru oft notuð og nemendum er hvatning í voninni um góðar einkunnir og velþóknun annarra á frammistöðu þeirra. Innri hvatning er mikil á yngsta stigi en fer minnkandi eftir því sem námið verður erfiðara og meiri kröfur eru gerðar til nemenda. Innri hvatning hefur þó úrslitaáhrif á nám, án hennar ættu nemendur afar erfitt með að læra og myndu líklega sleppa því almennt. Ytri hvatning er einnig nauðsynleg því nám getur ekki alltaf verið áhugavert, en mikilvægt er að beita henni rétt. Þeir nemendur sem læra af innri hvatningu gengur betur í námi, eru sjaldnar haldnir kvíða og líður betur andlega heldur en þeim sem læra af ytri hvatningu. Innri hvatning fer minnkandi með aldrinum og það hefur sýnileg áhrif á námsárangur eldri nemenda. Ytri hvatning hefur neikvæð áhrif á innri hvatningu og ættu kennarar að leggja áherslu á að vekja og styrkja innri hvatningu nemenda til náms.
Source: Skemman
Author: Steingrímur Sigurðarson 1987
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7057294187
