Work

Ímyndarsköpun kynþáttahyggu: Áhrif hugtaksins negri á mótun sjálfsmyndar

Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Kynþáttur er félagsleg sköpun sem kom fram á sjónarsviðið á 18.- 19. öld og þróaðist kynþáttahugtakið í takt við þrælasölu og nýlenduhyggju. Hugmyndafræði hennar byggir á að kynþættir mannkys séu ólíkir og aðgreinanlegir. Þar eru stöðugar orðræður um svarta sem óæðri kynþátt sem séu ekki jafn menningarsinnaðir og hvítir. Þrátt fyrir að mannfræðin hafi sýnt fram á að hugtakið kynþáttur eigi sér ekki við vísindaleg rök að styðjast, trúir fólk að meðlimir ólíkra kynþátta séu á eðlislægan hátt öðruvísi en hvítir. Þetta birtist í því sem fólk telur gjarnan vera svört og hvít menning. Neikvæðar staðalímyndir og viðurnefni hafa oft verið notað í garð hins svokallaða svarta kynþátts. Orðið negri hefur gjarnan verið notað sem neikvætt viðurnefni í garð svartra. Orðið negri hefur verið verið notað í neikvæðum orðræðum beint í garð einstaklinga sem teljast svartir til að undirstrika að þeir séu taldir óæðri frá sjónarhorni kynþáttahyggjunnar. Skoða ég upphaf, þróun og notkun orðsins negri. Einnig leitast ég við að skoða notkun þess innan um hipphopp heiminn. Þar hafa svartir Bandaríkjamenn tekið upp hugtakið og snúið neikvæðum merkingum hennar við. Mikilvægt er að skoða hver notkun hugtaksins negri er í alþjóðlegu samhengi. Í notkun orðsins negri er fólgin ákveðin valdefling.
Source: Skemman
Author: Sanna Magdalena Mörtudóttir 1992
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7057307247
Cites: 13
Cited by:
Related to: 10