Jafnréttisstarf og innleiðing jafnlaunastaðals í skipulagsheildum sem hluti mannauðs- og breytingastjórnunar
Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Breytingastjórnun felst í að bæta ferla innan skipulagsheildar til að hún verði skilvirkari og samkeppnishæfari. Mannauðsstjórnun felst í stjórnun á bæði starfsemi og starfsfólki, ásamt því að samþætta stafsmannamál við heildarstefnu skipulagsheildar og skapa þannig fyrirtækjamenningu sem þjónar markmiðum starfseminnar. Rannsóknir hafa sýnt að samband er á milli mannauðsstjórnunar og skilvirkni skipulagsheilda. Mannauður er ein lykilauðlinda skipulagsheilda og mikilvægt er að huga að mannauði þegar horft er til þess kostnaðar sem felst í að missa hæft og gott starfsfólk til samkeppnisaðila. Í þessu samhengi skiptir starfsánægja og fyrirtækjamenning miklu máli og verður, eins og kjarnastarfsemi skipulagsheildar, einn af þeim þáttum sem skapa skilvika skipulagsheild. \nJafnréttisstarf eða innleiðing jafnlaunakerfis hefur flest einkenni hefðbundinnar breytingastjórnunar. Verkfæri breytingastjórnunar geta því reynst mikilvæg til þess að vinna gegn neikvæðu viðhorfi starfsmanna til vinnu með jafnréttismál í skipulagsheildum. Þau geta nýst til að breyta neikvæðu viðhofi starfsmanna til jafnréttisstarfs ásamt að vera leið til þess að breyta sterkum hefðum eins og kynbundinni starfaskiptingu innan skipulagsheildar. Í breytingaferlinu ber stjórnanda að sýna stafsmönnum fram á væntanlegan ávinning með breytingunum sem og að skapa staðfestu um jafnréttismarkmið í fyrirtækjamenningu skipulagsheildar. \nViðhorf þeirra stjórnenda sem rætt var við í þessari rannsókn voru jákvæð til jafnréttisstarfs og jafnréttisáætlana. Unnið var með jafnréttisáætlanir innan skipulagsheildanna og stjórnendur töldu ávinning fólgin í að fá jafnlaunavottun. Ávinningurinn af innleiðingu jafnlaunavottunar töldu þeir vera fólginn í því að gera vinnustaðina betur samanburðarhæfa við samkeppnisaðila og að slík vottun gæti dregið úr tortryggni starfsfólks. \n \nLykilorð: Breytingastjórnun, mannauðsstjórnun, starfsánægja, jafnréttisstarf, jafnlaunastaðall.
Source: Skemman
Author: Sigríður Elín Sveinsdóttir 1983
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
Keywords: equal pay, human resource management, change management, organizational communication, employee attitudes, gender equality in the workplace, organizational performance, organizational behavior, organizational behavior management, organizational behavior change, organizational behavior modification
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7057457227
