Líkamsmynd unglingsstúlkna : áhrif samfélagsþátta, áhrifaríkar forvarnir, íhlutanir og heilsueflingarverkefni
Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Í þessari heimildaritgerð verður fjallað um líkamsmynd unglingsstúlkna og samfélagslega þætti sem hafa áhrif á hana, svo sem jafningja, foreldra og fjölmiðla. Þá verður farið yfir forvarnir, íhlutanir og heilsueflingarverkefni sem hafa reynst vel í baráttunni við neikvæða líkamsmynd og uppbyggingu jákvæðrar líkamsmyndar. Til að mynda forvarnir sem byggja á kennslu fjölmiðlalæsis, forvarnir sem stuðla að bættri sjálfsmynd og sjálfsáliti og íhlutun sem ætlað er að draga úr átraskanaeinkennum og bæta líkamsmynd. Einnig verður tekið dæmi um áhrifaríka forvarnaríhlutun sem miðar að því að hjálpa ungum konum að taka líkama sinn í sátt og byggist á misræmiskenningu Festinger (1957). Fjallað verður um jákvæð áhrif þess eiga góða fjölskyldu, að búa yfir seiglu og hlutverk fagfólks í skólum í uppbyggingu jákvæðrar líkamsmyndar hjá unglingsstúlkum. Tilgangur verkefnisins er að svara því hvernig bæta megi líkamsmynd unglingsstúlkna með aðkomu forvarna, íhlutana, fjölskyldu og fagfólks í skólum og efla jákvæða líkamsmynd með hjálp heilsueflingarverkefna. Niðurstöðurnar benda til þess að áhrifaríkast sé að sameina ákveðna þætti forvarna, íhlutana og heilsueflingarverkefna sem til umfjöllunar eru, í eina öfluga forvörn.
Source: Skemman
Author: Margrét H. Magnúsdóttir 1984
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7057644676
