Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar ritgerðar er að beina sjónum að því hvaða áhrif neysla áfengis og/eða annarra vímuefna hefur á líf kvenna svo betur sé hægt að styðja við þann hóp. Ritgerðin er heimildaritgerð þar sem stuðst er við greiningarviðmið, kenningar, rannsóknir og þekkingu á vímuefnaröskun almennt og þekkingu er snýr að konum og vímuefnaröskun. Fjallað er um greiningarlíkön sem notuð eru við greiningu á vímuefnaröskun en þau eru ICD-11 (e. International Classification of Diseases) og DSM-5 (e. Diagnostic and Statistical Manual of Mental Disorder). Samkvæmt þeim er vímuefnaröskun síversnandi og langvinnur sjúkdómur. Leitað var svara við eftirfarandi spurningunum: Hvaða áhrif hefur neysla vímuefna á sálræna, líkamlega og félagslega þætti kvenna? Hafa konur með vímuefnaröskun þörf fyrir sérhæfða þjónustu? Niðurstöður sýndu meðal annars að það er líffræðilegur munur á milli kynjanna sem hefur áhrif á efnaskiptaferli og umbrot vímuefna. Konur sýna hraðari þróun frá upphafi neyslu yfir í stjórnleysi miðað við karla. Neysla áfengis og annarra vímuefna hefur margvísleg neikvæð áhrif á sálræna, líkamlega og félagslega þætti kvenna. Vímuefnaneysla kvenna eykur líkur meðal annars á geðröskunum, áföllum, líkamlegum kvillum, einangrun, vímuefnatengdum glæpum og ótímabærum dauða. Auk þess sýndu niðurstöður að konur hafa þörf fyrir sérhæfða þjónustu. Áföll kvenna eru að jafnaði annars konar en áföll karla þar sem konur verða marktækt oftar fyrir heimilisofbeldi og kynferðislegu ofbeldi. Einnig upplifa þær einstakar meðferðarhindranir og hindranir í bata sem undirstrikar mikilvægi þess að hafa sérhæfða þjónustu fyrir konur. Út frá þessum niðurstöðum má draga þá ályktun að mikilvægt sé að styðja betur við konur með vímuefnaröskun og bjóða upp á fleiri kvennameðferðir hér á landi. \nLykilhugtök: vímuefni, vímuefnaröskun kvenna, meðferðarúrræði, félagsráðgjöf
Source: Skemman
Author: Elísa Sif Snorradóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Epidemiology
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7057659361
