Work

Kvíði og þunglyndi meðal unglinga

Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Megin tilgangur þessarar fræðilegu úrtektar er að kanna algengi geðrænna veikinda meðal unglinga og þá sérstaklega kvíða og þunglyndis sem eru algengustu geðrænu veikindin hjá þessum aldurshóp. Skoðaðar eru hverjar afleiðingar kvíða og þunglyndis geta verið á líf unglingsins og samfélagið í heild. Þar ber helst að nefna aukna tíðni sjálfsvíga, brottfalls úr menntaskóla og vímuefnamisnotkun. Tekinn var saman árangur af notkun hugrænnar atferlismeðferðar og núvitundar fyrir unglinga en þar sem mikill vitsmunalegur þroski á sér stað á þessu tímabili er mikilvægt að miða meðferðir fyrir að þörfum hvers og eins. Heimilda var aflað með gagnasöfnunum Cinahl, Scobus, Pubmed og fræðasetur Google. Notast var líka við heimildir úr gagnlegum tímaritsgreinum og bókum. \nTilgangur samantektarinnar er að benda á mikilvægi þess að koma í veg fyrir að unglingar þrói með sér kvíða og þunglyndi þar sem afleiðingarnar geta haft alvarleg áhrif á framtíð þeirra. Það er sérstaklega brínt að þeim sé gert auðvelt með að leita sér aðstoðar. Fram kemur að hjúkrunarfræðingar geta tileinkað sér og beitt samtalsmeðferðum fyrir unglinga hvort sem er í skólum, heilsugæslum eða innan spítalans. \nRannsóknir sem skoðaðar voru fyrir þessa fræðilegu samantekt sýndu fram á algengi kvíða og þunglyndis meðal unglinga og hvaða slæmu afleiðingar þessir sjúkdómar geta haft á líf þeirra. Þær staðfestu nytsemi hugrænnar atferlismeðferðar og iðkunnar núvitundar sem meðferð við geðrænum veikindum hjá unglingum. Einnig bentu þær á mikilvægi þess að efla forvarnir í geðheilbrigðismálum, sérstaklega innan framhaldsskólanna þar sem yfirleitt er auðveldast að ná til unglinganna. \nLykilorð: Unglingar, kvíði, þunglyndi, hugræn atferlismeðferð, núvitund
Source: Skemman
Author: Ásta Ýrr Kristjánsdóttir 1987
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7057723987
Cites: 40
Cited by:
Related to: 10