Work

LANIS skimunarlisti: Staða málþroska tvítyngdra leikskólabarna í pólsku (T1) og íslensku (T2)

Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Pólska er langstærsta minnihlutamál í íslensku samfélagi. Þó er lítið vitað um málþroska leikskólabarna með pólskt heimamál (T1) og íslenskt samfélagsmál (T2). Meginmarkmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á stöðu málþroska þriggja ára barna með pólskt heimamál sem ganga í íslenskan leikskóla. Skoðað verður hvort hægt sé að nota LANIS skimunarlistann til að skima fyrir málþroskafrávikum hjá þessum hópi. Leikskólakennarar barnanna meta málþroska þeirra í íslensku með LANIS skimunarlistanum en foreldrar meta málþroska þeirra í pólsku með pólskri útgáfu listans. Niðurstöður munu veita upplýsingar um hvernig tvítyngdum börnum gengur að tileinka sér íslensku og pólsku í samanburði við eintyngda jafnaldra. Athugað verður hvort börnin þurfi á sértækri málörvun að halda á samfélagsmálinu eða á heimamálinu. Enn fremur verður gerð grein fyrir hvort samband sé á milli málörvunar heima fyrir og orðaforða barnanna. \nEfni og aðferðir: Foreldrar og leikskólakennarar 31 tvítyngdra barna á aldursbilinu 2;9 til 3;10 ára svöruðu LANIS skimunarlistanum fyrir þessa rannsókn. Börnin höfðu pólskt heimamál (þ.e. annað eða báðir foreldrar töluðu pólsku heima fyrir) og gengu í íslenskan leikskóla en meðallengd leikskóladvalar voru 21 mánuðir. Tveir samanburðarhópar voru notaðir til viðmiðunar, annars vegar svör foreldra pólskra eintyngdra jafnaldra (n = 119) og hins vegar svör leikskólakennara íslenskra eintyngdra barna (n = 62). Heildarfjöldi þátttakenda voru því foreldrar og leikskólakennarar alls 212 barna. \nNiðurstöður: Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að orðaforði tvítyngdu barnanna í íslensku (T2) var marktækt minni en orðaforði íslenskra eintyngdra barna á sama aldri (p <0,001). Hins vegar var ekki marktækur munur á stærð orðaforða í pólsku hjá tvítyngdu börnunum í samanburði við orðaforða eintyngdra pólskra jafnaldra (p = 0,06). Meirihluti tvítyngdu barnanna (74%) töldust vera með slakan orðaforða í íslensku en 35% þeirra voru með slakan orðaforða í pólsku miðað við eintyngda jafnaldra. Þegar horft var til heildarorðaforða tvítyngdu barnanna var rúmlega fjórðungur með slakan heildarorðaforða. Í samanburði á svörum kennara og foreldra tvítyngdu barnanna mátti sjá að tvítyngdu börnin voru að jafnaði komin lengra í pólskum málþroska (málskilningi, máltjáning og málnotkun) en í íslenskum málþroska. Jákvæð fylgni fannst milli svara foreldra tvítyngdu barnanna um málörvun á íslensku heima og heildarstigum þeirra í íslenskum orðaforða. Ekki fannst marktæk fylgni milli málörvunar á pólsku heima fyrir og heildarstigum í pólskum orðaforða. \n Ályktanir: Niðurstöður þessarar rannsóknar gefa vísbendingar um að þriggja ára börn með pólskt heimamál en íslenskt samfélagsmál nái að tileinka sér heimamál sitt en eru stutt á veg komin með tileinkun íslenskunnar. Hægt er að styðjast við niðurstöður pólsku útgáfu skimunarlistans samhliða þeirri íslensku þegar dregnar eru ályktanir um hvort að barn með pólskt heimamál og íslenskt samfélagsmál sé með undirliggjandi vanda sem hamlar tileinkun málsins. Ef barnið kemur vel út í pólskum málþroska en ekki þeim íslenska, þrátt fyrir að það verji stórum hluta vökutíma síns í íslensku leikskólaumhverfi, bendir það til þess að málumhverfi leikskólans veiti því ekki nægilega málörvun í íslensku.
Source: Skemman
Author: Lilja Helgadóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7057731315
Cites: 42
Cited by:
Related to: 10