Work

Langvinn sár og sáramiðstöðvar: Þróun Sáramiðstöðvarinnar í Fossvogi

Year: 2016
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Tilgangur/markmið: Í þessu verkefni var leitast við að skoða þróun Sáramiðstöðvarinnar í Fossvogi frá stofnun hennar árið 2009 m.t.t. fjölda koma, samsetningu skjólstæðinga og tegund sára. Einnig voru skoðaðar rannsóknir sem gerðar hafa verið á langvinnum sárum eftir tilkomu sáramiðstöðva á Vesturlöndum til samanburðar. Bakgrunnur: Rannsóknir hafa sýnt að með tilkomu sáramiðstöðva á Vesturlöndum hafi tíðni langvinnra sára lækkað og lífsgæði sjúklinga batnað. Aðeins ein rannsókn hefur verið gerð á Íslandi um tíðni langvinnra sára en það var árið 2009 og er það sama ár og Sáramiðstöðin í Fossvogi var stofnuð. \nAðferðir: Gagna var aflað úr Sögukerfi Landspítala, úrtakið voru allar skráðar komur á Sáramiðstöðina í Fossvogi frá stofnun hennar árið 2009 og út árið 2015. Rannsóknin var með megindlegu sniði og unnið var úr gögnunum með lýsandi tölfræði. \nNiðurstöður: Komum á Sáramiðstöðina í Fossvogi hefur fjölgað rúmlega sexfalt frá stofnun hennar árið 2009 eða úr 397 komum í 2488 komur á ári. Alls voru 1630 einstaklingar sem sóttu þjónustu hennar og voru konur í meirihluta en karlar komu að meðaltali oftar, algengasta aldursbil skjólstæðinga Sáramiðstöðvarinnar var 60-69 ára og algengasta ástæða komu var eftirfylgd. Algengasta skráða sjúkdómsgreiningin var fótasár en sjúkdómsgreining var ekki skráð í meirihluta tilfella eða 71,2%. Hið sama á við um hjúkrunargreiningar en þær voru ekki skráðar í 55,6% tilfella, algengasta skráða hjúkrunargreiningin var vefjaskaði – sár. Hjúkrunarmeðferðir voru skráðar í 66,9% tilfella og var algengasta hjúkrunarmeðferðin sárameðferð. \nÁlyktun: Töluvert vantaði upp á skráningu á greiningum, meðferðum og ástæðu komu en til þess að gera frekari rannsóknir á starfsemi Sáramiðstöðvarinnar í Fossvogi og samsetningu skjólstæðinga hennar er nauðsynlegt að bæta og samræma skráningu. Einnig væri áhugavert að endurtaka rannsókn Guðbjargar Pálsdóttur á algengi og samsetningu langvinnra sára á Íslandi eftir tilkomu Sáramiðstöðvarinnar og út frá því hvort fjárhagslegur ávinningur sé af tilkomu þverfaglegrar sáramiðstöðvar á Íslandi. \n \nLykilorð: Langvinn sár, langvinn fótasár, þrýstingssár, lífsgæði, sáramiðstöðvar.
Source: Skemman
Authors: Sandra María Filippusdóttir, Oddný Þorsteinsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Surgery
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7057776964
Cites: 30
Cited by:
Related to: 10