Work

Konur í nútímasamfélagi: Helstu áhrifaþættir á lífsstíl og heilbrigði

Year: 2014
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Sjúkdómar sem eiga uppruna sinn í óheilbrigðum lífsstíl valda sex af hverjum tíu dauðsföllum í heiminum og á Íslandi má rekja 70% allra dauðsfalla á ári til lífsstílstengdra sjúkdóma. Helstu áhættuþættir lífsstílstengdra sjúkdóma eru óhollt matarræði, tóbaksnotkun, hreyfingarleysi og óhófleg neysla áfengis. Konur í nútímasamfélagi lifa annasömu lífi og eru líklegar til að setja þarfir annarra ofar sínum eigin, sem getur haft áhrif á lífsstíl þeirra og heilbrigði. Áðurnefnda áhættuþætti lífsstílsstengdra sjúkdóma er hægt að fyrirbyggja. Því var það áhugavert að rannsaka hvaða þættir hafa áhrif á lífsstíl og heilbrigði kvenna. \n \nMarkmið þessa verkefnis var að gera fræðilega úttekt á lífsstíl kvenna og kanna hvaða þættir hafa áhrif á hann, hverjar afleiðingar óheilbrigðs lífsstíls eru á heilsu og hvaða hlutverki hjúkrunarfræðingar gegna í heilsueflingu og lífsstílsráðgjöf. Kerfisbundin fræðileg samantekt var framkvæmd á áhrifaþáttum á lífsstíl og heilbrigði kvenna, þar sem rýnt var í um 100 greinar og þær greindar frá tímabilinu 2002-2014. \n \nNiðurstöður leiddu í ljós að helstu áhrifaþáttum á lífsstíl kvenna má skipta upp í þrjá flokka: (1) samfélagslegar væntingar, (2) persónulega þætti, það eru persónulegar hvatir, trú á eigin getu, áhættuhegðun, tilfinningaleg bjargráð og streita, og (3) umhverfis- og félagslega þætti, það eru félagslegur stuðningur, félagslegar aðstæður og tímaskortur. Streita reyndist vera sá áhrifaþáttur sem hafði hvað mest áhrif á lífsstíl kvenna. \n \nHjúkrunarfræðingar horfa heildrænt á skjólstæðinga sína, taka mið af því umhverfi sem þeir búa í og höfða til sjálfsábyrgðar þeirra á eigin heilsu og lífsstíl sem er afar mikilvægt í lífsstílsráðgjöf. Áhugahvetjandi samtal, heilbrigðisfræðsla, streitustjórnun og stuðningur eru meðferðir sem hjúkrunarfræðingar geta nýtt og hafa reynst vel í ráðgjöf fyrir einstaklinga sem þurfa á lífsstílsbreytingum að halda. Fleiri og fjölbreyttari úrræði vantar innan heilbrigðisþjónustunnar á Íslandi fyrir einstaklinga sem glíma við áhættuþætti lífsstílstengdra sjúkdóma og gegna hjúkrunarfræðingar þar mikilvægu hlutverki við að koma á fót bættri þjónustu. \n \nLykilorð: Lífsstíll, konur, streita, kynhlutverk, lífsstílstengdir sjúkdómar og hlutverk hjúkrunarfræðinga.
Source: Skemman
Authors: Olga Eir Þórarinsdóttir 1989, Ásdís Arna Björnsdóttir 1989
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7057816496
Cites: 94
Cited by:
Related to: 10