Mat á árangri tíu tíma hópmeðferðar við kvíða barna: Klókir krakkar
Year: 2008
Type: dissertation
Abstract: Árangur tíu tíma hópmeðferðar við kvíðaröskunum barna var rannsakaður. Hann var \nborinn saman við árangur af sex tíma samskonar meðferð sem var athugaður árið \n2005. Aðalmarkmið rannsóknarinnar var því að sjá hvort fjögurra tíma viðbót, sem \ninnihélt námsefni um félagsfærni, ákveðni og þrautalausn, myndi bæta árangurinn. \nHópmeðferðin var haldin á BUGL og þátttakendur voru börn á aldrinum 7-13 ára og \nforeldrar þeirra (N=4). Börnin voru ýmist greind með ofurkvíðaröskun, \naðskilnaðarkvíða eða áráttu-og þráhyggjuröskun. Árangurinn var fundinn með \nstöðluðum spurningalistum sem mátu kvíðaeinkenni (MASC), tilfinningaleg \nvandamál, erfiðleika í hegðun, félagsfærni, samskiptavanda (SDQ) og \nþunglyndiseinkenni (CDI). Einnig var lagður fyrir listinn Huglægt mat á kvíðahegðun \nbarnsins þíns og listi sem mat ánægju foreldra með hópmeðferðina. Þátttakendur \nsvöruðu spurningalistunum fyrir meðferð, eftir sex tíma og eftir tíu tíma. Skor listanna \nvoru borin saman við skor tilrauna-og samanburðarhóps rannsóknarinnar frá árinu \n2005. Helstu niðurstöður voru þær að árangur lengri meðferðar var sá sami og styttri \nmeðferðar. Eftir sex tíma meðferð var marktæk lækkun á heildarskori SDQ hjá báðum \ntilraunahópum og lækkun á MASC þó hún hafi ekki verið marktæk. Engin lækkun \nvarð á Samskiptavanda og engin hækkun á Félagsfærni. Meðferðin virtist því ekki \nhafa áhrif á félagsfærni. Töluverð lækkun var á CDI í þessari rannsókn en hækkun \nvarð í rannsókn ársins 2005 og því ekki hægt að draga ályktun um áhrif \nmeðferðarinnar á þunglyndiseinkenni. Töluverð lækkun átti sér stað á huglægu mati \nforeldra á kvíðahegðun barnsins hjá báðum tilraunahópum og var hún marktæk eftir \nsex tíma í meðferð. Foreldrum fannst því meðferðin bera árangur og voru þeir \njafnframt mjög ánægðir með hana samkvæmt ánægjulistanum.
Source: Skemman
Authors: Lydía Ósk Ómarsdóttir 1983, Unnur Vala Guðbjartsdóttir 1983
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7057869680
