MITF in the mouse central nervous system: Mitf expression and target genes in the olfactory bulb
Year: 2010
Type: dissertation
Abstract: Mitf (microphthalmia-associated transcription factor) genið er vel varðveitt og er tjáning þess nauðsynleg fyrir þroskun litfrumna og einnig er það mikilvægt fyrir myndun sortuæxla. Mitf stökkbreyttar mýs skortir litfrumur í húð, hári og augum; þær eru blindar, með pínulítil augu (microphthalmia) og heyrnarlausar. Samkvæmt Allen Brain Atlas gagnagrunninum er Mitf tjáð í lyktarklumbu músa, en lyktarklumban er sá hluti heilans sem tekur á móti lyktarskilaboðum frá nefinu. Ekkert er vitað um hlutverk MITF í miðtaugakerfinu. \n Fyrra markmið þessa verkefnis var að staðfesta Mitf tjáningu í lyktarklumbu músa. Það var gert með RT-PCR og magnbundnum PCR mælingum. Seinna markmiðið var að ákvarða hvaða gen MITF hefur áhrif á í lyktarklumbunni og komast þannig nær því að ákvarða hlutverk þess í lyktarskyni. Annars vegar voru þekkt MITF markgen úr öðrum frumugerðum skoðuð og hins vegar framkvæmd genatjáningargreining á örflögu. Ekki reyndust nein af þeim þekktu markgenum sem valin voru vera markgen fyrir MITF í lyktarklumbu músa, nema hugsanlega Cma1. Úr örflögugreiningunni kom genið Sgcg helst til greina sem MITF markgen. Niðurstöður úr luciferasa prófi á stýrilsvæði Sgcg í HEK 293T frumum benda til þess að MITF virkji ekki tjáningu frá stýrilsvæði mSgcg. Hlutverk MITF í lyktarskyni var athugað með einföldum lyktarprófum. Niðurstöður þeirra sýndu að Mitf-mi-vga9 arfhreinu mýsnar hafa ekki misst lyktarskynið, en mýs með minna MITF magn (Mitf-mi-vga9 arfblendnar og arfhreinar mýs) virðast þó mögulega hafa minna þefskyn heldur en villigerðarmýs.
Source: Skemman
Author: Anna Þóra Pétursdóttir 1984
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Sensory Systems
Field: Neuroscience
Domain: Life Sciences
Keywords: MITF, microphthalmia-associated transcription factor, olfactory bulb, mice, gene expression, target genes, transcriptional regulation, olfactory sensory neurons, olfactory epithelium, photoreceptor development, microphthalmia, CMA1, luciferase reporter assay, central nervous system, phototransduction
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7058070886
