Lífsins framsvið : notkun myndvinnsluforrita og áhrif þeirra á líkamsímynd og viðhald staðalímynda
Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar ritgerðar er að skoða hvernig notkun Photoshop ásamt öðrum sambærilegum forritum hafa áhrif á líkamsímynd og viðhaldi staðalímynda, hvaðan einstaklingar fái hugmyndir um æskilegt útlit og hvað sé í rauninni æskilegt útlit. Farið verður yfir virkni Photoshop og sögu þess, ásamt því að tekin verða dæmi um samskonar myndvinnsluforrit sem hönnuð eru sérstaklega fyrir snjallsíma. Skoðað verður hugtakið um líkamsímyndina (e.body image), hvernig neikvæð áhrif líkamsímyndarinnar geta verið okkur skaðleg og hvernig samanburður okkar á staðalímyndum nútíma samfélags veldur því að líkamsímynd okkar hrakar. Samkvæmt kenningum Festinger um félagslegan samanburð (e. social comparison), erum við stöðugt að bera okkur saman við aðra í samfélaginu. Farið verður yfir þau áhrif sem neðangreindir miðlar geta haft á líkamsímynd einstaklinga. Fjölmiðlar nota forritið Photoshop til þess að senda frá sér óraunhæfar myndir af útliti og líkama einstaklinga en útlitið sem fjölmiðlar birta okkur er óraunhæft viðmið sem enginn, eða mjög fáir geta uppfyllt. Með komu samfélagsmiðla hefur notkun á myndvinnsluforritum ætluð snjallsímum aukist en áhrifavaldar, líkt of fjölmiðlar, nýta sér þau forrit til að skapa sér ákveðna ímynd í takt við kröfur samfélagsins um æskilegt útlit sem sem gefur í skyn að líf þeirra sé svo fullkomið þó svo að í raunveruleikanum sé það kannski ekkert svo frábrugðið lífi annara. Þó svo að við vitum að myndir og auglýsingar í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum séu breyttar virðist það ekki nægja, því einhverra hluta vegna verðum við samt fyrir áhrifum þess. Vegna komu myndvinnsluforrita fyrir snjallsíma gefst almenningi nú tækifæri á að breyta myndum af sér og er því vöktun samfélagsins gagnvart útlitsstöðlum nútímans framkvæmd af okkur sjálfum.
Source: Skemman
Author: Hjördís Laufey Lúðvíksdóttir
Institution: Iceland University of the Arts
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7058151966
