Work

Mikilvægi stuðnings á skólagöngu einhverfra barna

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Ritgerð þessi er lokaverkefni til BA-prófs í uppeldis- og menntunarfræði við Háskóla Íslands. Í ritgerðinni verður fjallað um einhverfu út frá fræðilegum heimildum, orsakir hennar og einkenni. Fjallað verður um einhverfuróf, dæmigerða einhverfu, ódæmigerða einhverfu og Asperger heilkenni. Greining einhverfu, skólaganga einhverfra, kennsla og aðferðir ásamt áskorunum einhverfra barna verður kynnt. Einnig verður fjallað um kennslu og þær aðferðir sem eru í boði fyrir einhverfa nemendur. Helstu niðurstöður samantektarinnar gefa til kynna að einhverf börn eiga erfitt með að vera inn í skólastofum að læra. Það er hægt að koma til móts við þau með TEACCH og skipulagðri kennslu ásamt fleiri úrræðum. Greiningar á einhverfu, ásamt úrræðum hafa tekið miklum framförum. Einnig kom í ljós að menntun fyrir börn með einhverfu og skólaganga í skóla á aðgreiningar stuðlar að bættri færni ásamt aukinni þátttöku í samfélaginu.
Source: Skemman
Author: Ljiridona Osmani
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7058206610
Cites: 20
Cited by:
Related to: 10