Year: 2017
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Knattspyrna er ein vinsælasta íþrótt í heiminum í dag og er aukning á iðkendafjölda talsverður á hverju ári, með þessari fjölgun eykst einnig tíðni meiðsla hjá ungmennum. Knattspyrna er með hærri tíðni meiðsla heldur en margar aðrar íþróttir sem valda samstuði. Rannsóknin okkar mun gera grein fyrir algengustu meiðslum stúlkna og drengja í 2. og 3. flokki í \nknattspyrnu, þar sem farið verður inn á mikilvægi \nstyrktarþjálfunar og fyrirbyggjandi æfinga til að minnka tíðni meiðsla. Rannsóknarspurningarnar voru: er munur á meiðslum karla og kvenna í knattspyrnu, eru meiðsl í 2. flokki algengari en í 3. flokki og eru hnémeiðsl algengari meðal kvenna heldur en karla? Til að svara rannsóknarspurningunum var farið á æfingar hjá Breiðabliki, Fjölni, Víkingi og Þrótti og svöruðu \niðkendur flokkanna spurningarkönnun. Alls tóku 147 iðkendur, 53 stúlkur og 94 drengir, þátt í rannsókninni. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar voru hnémeiðsl algengustu meiðsl í knattspyrnu hjá bæði drengjum og stúlkum. Einnig má sjá að styrktarþjálfun hefur áhrif á meiðslatíðni í 2. flokki þar sem aldursbilið er breiðara en í öðrum yngri flokkum.
Source: Skemman
Authors: Harpa Lind Guðnadóttir, Þórður Helgi Halldórsson
Language: Icelandic
Subfield: Social Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7058277080
