Nám í gegnum hreyfingu og leik : ásamt leikjahandbók
Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Lokaverkefnið mitt byggist á fræðilegri ritgerð um hreyfingu og leiki í námi og með henni fylgir handbók með leikjum sem hægt er að nota án mikillar fyrirhafnar. Hugmyndin af verkefninu kviknaði vegna áhuga á fjölbreytni í skólaíþróttum og mikilvægi þess að leyfa nemendum að kynnast þeirri miklu flóru íþróttagreina sem til eru. Fjölbreytni í íþróttum er mikilvæg og eru til endalaust af leikjum fyrir íþróttir sem stuðla að hreyfingu. Fræðilegi hluti ritgerðarinnar fjallar því um hreyfingu og mikilvægi hreyfingar sem hluti af heilbrigðum lífstíl alla ævi, sérstök athygli er lögð á hreyfingu barna í gegnum leik. Farið er í gegnum helstu ráðleggingar um hreyfingu frá landlækni og þau áhrif sem hreyfing og hreyfingarleysi getur haft á einstaklinginn. Leikir eru stór partur af lífi hvers barns og er mikilvægur þáttur í kennslu barna og fjalla er um ýmsar kenningar og verkefni sem nýtt eru í skólum sem styðja við kosti þess að hafa leiki í kennslu. Leikir sem kennsluaðferð er einnig góð leið til að auka hreyfingu hjá nemendum. Handbókin er síðan leikjahandbók með skemmtilegum og fjölbreyttum leikjum sem þarfnast lítils undirbúnings og fárra eða engra áhalda. Í handbókinni má finna leiki fyrir öll aldursstig grunnskóla og krefjast allir leikirnir hreyfingar. Allir leikirnir eru frekar auðveldir og hægt að framkvæma þá bæði á útisvæði eða inni í sal. Leikirnir geta einnig verið hentugir fyrir almenna kennara skólans til að brjóta upp kennslu og leyfa nemendum að hreyfa sig.
Source: Skemman
Author: Malín Mist Jónsdóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Topic: Physical Activity and Health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7058285129
