Work

Nær-dauða-reynsla einstaklinga, einkenni og áhrif: Fræðileg samantekt

Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Bakgrunnur: Hluti einstaklinga sem hefur komist í návígi við dauða upplifir svokallaða nær-dauða-reynslu. Vegna framfara í læknavísindum eru fleiri sem lifa af návígi við dauðann. Hluti þeirra gengur í gegnum djúpstæða sálfræðilega upplifun sem oft er af dulrænu eðli en þá er \ntalað um nær-dauða-reynslu. Í kjölfar þess vakna oft upp margar spurningar og leitar þessi hópur gjarnan til heilbrigðisstarfsmanna í von um skýringar á þessum áhrifamikla atburði. Tilgangur: Að draga saman þekkingu og samþætta niðurstöður rannsókna af einkennum nær- \ndauða-reynslu og þau áhrif sem sú reynsla hefur á þann sem fyrir henni verður. Auk þess að draga fram mögulegar hjúkrunarþarfir þessara einstaklinga með hliðsjón af reynslunni. Aðferð: Fræðileg samantekt (e. literature review) eigindlegra og megindlegra rannsókna. \nRannsóknarspurning var sett fram samkvæmt PICOT-viðmiðum. Leitin fór fram í gagnagrunnum Cinahl, PubMed og Web of Science. Rannsóknirnar voru birtar á árunum 2014-2024 og fjölluðu ýmist um einkenni og/eða áhrif nær-dauða-reynslu á einstaklinga. Titlar, útdrættir og heildartextar voru skimaðir eftir inntöku- og útilokunarskilyrðum. Greining á \nheimildum var birt í PRISMA-flæðiriti. Niðurstöður: 15 rannsóknir, bæði eigindlegar og megindlegar uppfylltu inntökuskilyrðin. \nÞátttakendur voru samtals 1.856 og af þeim höfðu 1.473 upplifað nær-dauða-reynslu. Niðurstöður sýndu sambærileg þemu og þætti einkenna hjá þessum einstaklingum, einna helst voru það tilfinningar um frið og vellíðan, breytt skynjun á líkama og að sjá ljósið. Niðurstöður \nsýndu einnig að reynslan hafði áhrif á einstaklinginn á mörgum sviðum. Til að mynda hafði hún marktæk áhrif á viðhorf til lífs og dauða, lífsánægju og tengsl við aðra. Ályktun: Nær-dauða-reynsla er flókið fyrirbæri en hjúkrunarfræðingar eru í lykilstöðu til þess \nað kom auga á einkenni hennar vegna nálægðar þeirra við sjúklinga. Góður skilningur á einkennum og áhrifum reynslunnar er mikilvægur í starfi hjúkrunarfræðinga. Með því að afla sér upplýsinga og ígrunda nær-dauða-reynslu geta hjúkrunarfræðingar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn orðið betur í stakk búnir til þess að opna á umræðuna ásamt því að styðja skjólstæðinga sína í gegnum þessa reynslu. Gagnlegt væri að þróa og innleiða fræðsluefni og skýra verkferla sem gætu stutt heilbrigðisstarfsfólk í upplýsingagjöf og fræðslu. \nLykilorð: Nær-dauða-reynsla, einkenni, áhrif, hjúkrun
Source: Skemman
Authors: Sólrún Ásta Guðnýjardóttir Reynisdóttir, Agnes Helga Björnsdóttir, Katrín Ósk Einarsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7058332625
Cites: 91
Cited by:
Related to: 10