Work

„Maður er bara í 300 hlutverkum hérna" - Líðan umsjónarkennara í starfi

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Starfsumhverfi kennara og þá sérstaklega umsjónarkennara hefur tekið miklum breytingum undanfarin ár og starf umsjónarkennara verður sífellt viðameira, til dæmis með auknum foreldrasamskiptum, erfiðari nemendamálum og fjölþættari vanda nemenda. Markmið rannsóknarinnar var að skoða líðan umsjónarkennara og hvaða þættir í starfi og starfsumhverfi umsjónarkennara geta haft áhrif á líðan þeirra í starfi. Notast var við eigindlega aðferðafræði við gerð rannsóknarinnar og tekin viðtöl við umsjónarkennara víðs vegar á landinu. Leitast var eftir að skoða hvað það er í starfsumhverfi umsjónarkennara sem getur haft áhrif á líðan þeirra í starfi og voru gögnin greind með þemagreiningu. Í niðurstöðum komu fram fjögur þemu sem varpa ljósi á þætti sem tengjast líðan umsjónarkennara í starfi. Viðmælendur lýstu að alltof mikið aðgengi væri að kennurum og oft skipta foreldrar sér af því hvernig skólastarfinu er háttað í stað þess að treysta fagaðilum. Einnig nefndu viðmælendur að nemendamál væru orðin erfiðari og þyngri en var fyrir nokkrum árum og oft vantaði kennara úrræði og leiðir varðandi þessi mál. Viðmælendur lýstu því að það helsta sem veitti þeim vellíðan í vinnunni og hvetti þá áfram í starfi væru nemendurnir og að dýrmæt tengsl mynduðust oft á milli þeirra. Viðmælendur bentu á að vinnuaðstæður kennara væru oft ekki nægilega góðar. Þá lýstu viðmælendur því hve mikilvægt væri að vera í góðu teymi og að þaðan kæmi helsti stuðningurinn sem væri mikilvægur þáttur varðandi vellíðan kennara í starfi. Fáar rannsóknir hafa verið gerðar um líðan umsjónarkennara í starfi og í ljósi þess hversu flókið og umfangsmikið starfið er væri áhugavert að sjá frekari rannsóknir á þessu sviði. Niðurstöður þessarar rannsóknar vekja vonandi upp umræðu um bætt vinnuumhverfi kennara. Þær nýtast stjórnendum í skólum sem og menntayfirvöldum og minna á mikilvægi þess að huga að líðan umsjónarkennara í starfi. \n \nLykilorð: umsjónarkennari, grunnskóli, líðan í starfi, starfsumhverfi, nemendamál
Source: Skemman
Author: Arndís Ármann Halldórsdóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7058356810
Cites: 36
Cited by:
Related to: 10