Work

Raddvandi íslenskra atvinnusöngvara: Tíðni, einkenni og áhættuþættir

Year: 2014
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Það er vel þekkt að raddvandi getur haft hamlandi áhrif á líf fólks. Sérstaklega fyrir einstaklinga sem nota rödd sína í atvinnuskyni en margar rannsóknir gefa til kynna aukna áhættu á raddvanda meðal þess hóps. \nMarkmið: Að afla upplýsinga um raddvanda íslenskra atvinnusöngvurum með áherslu á tíðni, helstu einkenni og áhættuþætti raddvanda. Bornir voru saman tveir hópar atvinnusöngvara, þ.e. klassísir söngvarar annars vegar (KS-söngvarar) og söngvara með annan söngstíl en klassískan hins vegar (AS-söngvarar). Aflað var upplýsinga um tíðni, áhættuþætti og einkenni raddvanda hjá þessum hópum og leitast eftir að greina mun á milli hópanna tveggja. Einnig var skoðað hvort lengd söngmenntunar hefði tengsl við raddvanda. \nAðferð: Leitað var eftir þátttakendum hjá FÍH, tveimur umboðsskrifstofum söngvara; Prime og Promo ehf og á þremur hópum söngvara á Fésbók. Þátttakendur svöruðu rafrænum spurningalista sem innihélt 83 spurningar um bakgrunn þátttakenda, söngmenntun, umhverfi, lífsvenjur, heilsufar og raddvanda. Þátttakendur voru 106, 75 konur og 31 karl. \nNiðurstöður: Tíðni raddvanda var nokkuð há meðal atvinnusöngvara. Martækt fleiri AS-söngvarar töldu sig hafa verið með raddvanda áður samanborið við KS-söngvara. Helstu einkenni raddvanda voru raddþreyta, tímabundin hæsi og erfiðleikar með að ná hæstu tónunum. Tíðni flestra raddeinkenna var hærri meðal AS-söngvara samanborið við KS-söngvara. Bakflæði var algengara meðal þeirra sem voru með raddvanda og söngvarar með raddvanda eru líklegri til að hita oftar upp röddina en aðrir. KS-söngvarar upplifðu meiri kvíða í tengslum við raddvandann og voru líklegri til að meta raddvanda sinn alvarlegan en AS-söngvarar. Upphaf raddvanda var yfirleitt tengdur við mikla raddnotkun og álag annars vegar eða veikindi og kvef hins vegar. \nÁlyktun: Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að raddvandi sé töluvert algengur meðal atvinnusöngvara líkt og aðrar rannsóknir hafa gefið til kynna. Einnig benda niðurstöður til að söngvarar með annars konar söngstíl en klassískan séu í meiri hættu á að eiga við raddvanda. Bakflæði virðist vera stór áhættuþáttur þegar kemur að raddvanda atvinnusöngvara en þörf er á frekari rannsóknum á þáttum sem taldir eru auka áhættu á raddvanda þessa hóps.
Source: Skemman
Author: Halla Marinósdóttir 1987
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7061456453
Cites: 40
Cited by:
Related to: 10