Work

Rætur fortíðar styrktar til betri framtíðar : tengsl erfiðra upplifana í æsku við lífsgæði fólks seinna meir á lífsleiðinni

Year: 2016
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Áföll eða erfið upplifun í æsku er reynsla af ýmsum toga sem hefur áhrif á heilsutengd lífsgæði fólks á fullorðinsaldri. Slík reynsla eins og ofbeldi og vanræksla geta valdið streitu og reynst fólki þungbært á fullorðinsárum. Rannsóknir hafa bent á að tengsl eru á milli andlegrar vanlíðunar og langvarandi líkamlegra veikinda við meiri sjúkdómshættu og verri framtíðarmöguleika. Megin tilgangur þessarar rannsóknar var að skoða hvort erfiðar upplifanir í æsku hafi áhrif á heilsufar og lífsgæði fólks og kanna hvort tengsl væru þar á milli. Úrtakið var 577 einstaklingar, 495 konur (85,8%) og 82 karlar (14,2%). Megindlegri rannsóknaraðferð var beitt til að greina mun á heilsutengdum lífsgæðum fólks með fleiri eða færri áföll í æsku. Spurningarlistarnir heilsutengd lífsgæði (Icelandic quality of life) og erfiðar upplifanir í æsku (ACE Adverce childhood experiences) voru lagðir fyrir þátttakendur. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að munur var á lífsgæðum þátttakenda sem höfðu upplifað fleiri áföll heldur en hjá þeim sem höfðu upplifað færri áföll. Marktækur munur var á öllum niðurstöðum og sýnir rannsóknin fram á tengsl við erfiðar upplifanir í æsku og verra heilsufar á fullorðinsárum. Slík reynsla hefur áhrif og veldur varanlegum skaða sem viðhelst út lífið sé ekki gripið inn í fyrr á lífsleiðinni. Með auknum skilningi á langtímaáhrifum sem áföll hafa, gefa niðurstöður þessar innsýn á mikilvægi þess að grípa inn í og aðstoða.
Source: Skemman
Authors: Edda Margrét Hilmarsdóttir 1976, Sigríður Björnsdóttir 1966, Hrefna Gissurardóttir 1966
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7061633902
Cites: 118
Cited by:
Related to: 10