Rannsóknir í félagsvísindum XII. Viðskiptafræðideild. Erindi flutt á ráðstefnu í október 2011
Year: 2011
Type: book
Abstract: Ágæti lesandiÞjóðarspegillinn, árleg ráðstefna um rannsóknir í félagsvísindum er nú haldin í tólfta sinn í Háskóla Íslands.Ráðstefnan var fyrst haldin á árinu 1994.Á þeim sautján árum sem síðan eru liðin hefur ráðstefnan vaxið að fjölbreytni og umfangi sem endurspeglast með skýrum hætti í ráðstefnuriti því sem hér getur að líta.Frá upphafi hefur markmið ráðstefnunnar verið að gefa félagsvísindafólki tækifæri til að kynna rannsóknir sínar og skapa þannig vettvang fyrir fræðilega umræðu með þátttöku fræðafólks en ekki síst almennings.Í þessu ráðstefnuriti eru 32 greinar sem hafa verið ritstýrðar.Eru það nokkuð færri greinar en á árinu 2010.Þessi mikli fjöldi fræðigreina endurspeglar ekki aðeins breitt fræðasvið og öflugt rannsóknarstarf, heldur er hann einnig til marks um þá miklu grósku sem er í viðskiptafræðum á Íslandi.Ákveðið var að herða á þeirri vinnureglu að einstakir fræðimenn ættu að hámarki tvær greinar í ritinu.Þá var einnig fylgt þeirri meginreglu að leiðbeinendur væru meðhöfundar að greinum sem kynntu niðurstöður meistaraverkefna.Samkvæmt venju voru greinar til birtingar valdar á á grundvelli útdráttar sem höfundar sendu inn.Lögð var áhersla á að höfundar færu eftir forskrift hvað varðar lengd og uppsetningu greina.Ljóst er að mörgum þykir plássið naumt skammtað en nauðsynlegt er að hafa strangar lengdartakmarkanir.Ég þakka höfundum og þeim sem unnið hafa að útgáfu bókarinnar með einum eða öðrum hætti fyrir gott samstarf og vel unnin störf.Sérstaklega vil ég þakka Sóleyju Lúðvíksdóttur sem bar hitann og þungann af umsýslu vegna hennar.Viðskiptafræðideild hefur þá skyldu að vera leiðandi í rannsóknum og kennslu í viðskiptafræði á Íslandi.Ein leið til þess að sinna þessu hlutverki er að skipuleggja ráðstefnur þar sem fræðimenn búsettir á Íslandi fá tækifæri til þess að greina frá rannsóknum sínum.Það er von mín að Þjóðarspegillinn, Ráðstefna XII í félagsvísindum verði til þess að efla enn frekar rannsóknir á sviði viðskiptafræða og að gestir ráðstefnunnar hafi bæði gagn og gaman af þeim erindum sem flutt verða.
Source: Skemman
Author: Ingjaldur Hannibalsson, ritstj.
Language: Icelandic
Topic: Research in Social Sciences
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7061717180
