Work

Réttindamál fatlaðs fólks: Greining á mannréttindum fatlaðs fólks út frá sjónarhorni félagsráðgjafar

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Fatlað fólk og aðstandendur þess hafa um árabil þurft að berjast fyrir auknum mannréttindum og jafnrétti til jafns við aðra þjóðfélagsþegna. Á undanförnum áratugum hefur réttindamál fatlaðs fólks orðið sýnilegri með tilkomu fötlunarfræða og hagsmunasamtaka fatlaðs fólks sem hefur leitt til mikillar framfara við þróun mannréttinda. Tilgangur þessar heimildaritgerðar er að varpa ljósi á tengingu félagsráðgjafar við mannréttindi og málefni fatlaðs fólks. Fræðileg umfjöllun ritgerðarinnar snýr að sjónarmiðum sem snúa að málefnum fatlaðs fólks og rýnt verður í \nþróun fötlunarfræða og ólíkra sjónarhorna innan hennar sem öll hafa ólíkar áherslur þegar þau skilgreina hvað felst í orðinu fötlun. Skoðað verður hlutverk félagsráðgjafa og vinnuaðferðir sem koma við sögu í starfi með fötluðu fólki, ásamt því að rýna í lög og reglugerðir sem koma að málefnum fatlaðs fólks og réttindabaráttu þeirra. Niðurstaða \nmín er sú að mörg jákvæð áhrif hafa átt sér stað í réttinda baráttu fatlaðs fólks á undanförnum árum og er ljóst að með betri vitundarvakningu um réttindi fatlaðs fólks verða tækifærin fleiri, þátttaka fatlaðs fólks að samfélaginu meiri í framtíðinni, miðað við \nhraða þróun á undanförnum árum. Tilkoma Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks var mikil umbylting fyrir mannréttindi fatlaðs fólks, þar sem samningurinn kveður á um jafnrétti og aukna þátttöku fatlaðs fólks til samfélagsins. Þarf þó að hafa í huga að ávallt þarf að standa vörð um að réttindi fatlaðs fólks séu virt.
Source: Skemman
Author: Kristrún Anna Borgþórsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7061780093
Cites: 40
Cited by:
Related to: 10