Samanburður á aðferðum til að eiga við brottfallsgildi í mælitækinu PCL-5 sem metur áfallastreituröskun
Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Inngangur: Áfallastreituröskun er afleiðing áfalla og einkennist af neikvæðum áhrifum atburðarins á huga og hegðun. Posttraumatic Stress Disorder (PCL-5) er staðlaður spurningalisti sem skimar fyrir röskuninni. Algengt er að einhver gildi vanti hjá þátttakendum. \nMarkmið: Að greina dreifingu brottfallsgilda á PCL-5 listanum. Bera saman skor listans og áhrif ólíkra aðferða til að eiga við brottfallsgildi á það. \nAðferðir: Lýsandi tölfræði var notuð til að varpa ljósi á dreifingu brottfallsgilda.Til að bera saman aðferðirnar var notast við tvíkosta aðhvarfsgreiningarlíkan og línulegt aðhvarfslíkan. Meðaltal og staðalfrávik PCL-5 listans var skoðað eftir raungögnum og aðferðum. Punktarit (eingöngu þeirra sem voru með brottfallsgildi) var skoðað til þess að bera saman aðferðirnar sem um ræðir. \nNiðurstöður: Algengast var að merkja við kynferðislega áreitni sem versta áfall á LEC-5 listanum. Hlutfall tapaðra gilda í niðurstöðum PCL-5 listans var 1,19% og 9% þátttakenda svöruðu ekki einni eða fleiri spurningum. Flestir þátttakendur svöruðu ekki spurningunni um að muna ekki mikilvæg atriði lífsreynslunnar. Miðgildi brottfallsgilda hjá þátttakendum á aldrinum 60 til 69 ára var hærra en hjá hinum aldurshópunum. Miðgildi brottfallsgilda hjá þeim sem völdu náttúruhamfarir eða slys sem versta áfall á LEC-5 listanum er hærra en þeim sem völdu önnur áföll á listanum. Dreifing brottfallsgilda hjá þátttakendum með háskólapróf er minni en hjá þeim sem hafa annarskonar menntun. Innfæring tapaðra gilda hækkaði meðaltalsskor PCL-5 listans úr 22 stigum í 22,6 stig. Við samanburð kom í ljós að ekki er munur á meðaltali eftir aðferðum. Aðferðin meðaltal innan einstaklinga gaf ögn frábrugðna niðurstöðu þegar um mjög mikið brottfall var að ræða (amk 15 af 20 spurningum ósvarað). \nÁlyktun: Niðurstöður leiða í ljós að mikilvægt er að fylla inn í brottfallsgildi. Síst er hægt að mæla með meðaltali innan einstaklinga. Niðurstöðurnar gefa til kynna að ráðlegt væri að eyða einstaklingum sem svara færri en fimm spurningum úr gagnasafninu.
Source: Skemman
Author: Sigrún Ýr Eyjólfsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7061893537
