Work

Samkeppnishæfni lækningatengdrar ferðaþjónustu

Year: 2011
Type: dissertation
Abstract: Samkeppnishæfni endurspeglar getu þjóðar til verðmætasköpunar og leikur framleiðni þar lykilhlutverk. Aukin framleiðni eflir langtímahagsæld þjóða. Samstarf fyrirtækja er lykilþáttur í árangri þeirra og sýnt hefur verið fram á mikilvægi klasa í efnahagslegu tilliti. Klasar auka framleiðni og nýsköpun sem leiðir til aukinnar samkeppnishæfni og meiri hagsældar. \nRannsóknin styðst við fræðikenningar Michael E. Porters og er samkeppnishæfni Íslands í lækningatengdri ferðaþjónustu metin út frá demantslíkani hans. Styrkleikar greinarinnar eru greindir auk þeirra veikleika sem dregið geta úr samkeppnishæfni hennar. Þá er staða klasamyndunar innan lækningatengdrar ferðaþjónustu skoðuð. Að lokum er samkeppnishæfni Íslands sem ferðamannastaðar metin með tilliti til helstu samkeppnislanda Íslands innan lækningatengdrar ferðaþjónustu. \nRannsóknin byggist á eigindlegri aðferðafræði en tekin voru hálfopin viðtöl við lykilaðila innan greinarinnar. Viðmælendur voru valdir með matsaðferð. Klasakort höfundar var borið undir alla viðmælendur rannsóknarinnar. Þeir voru auk þess beðnir um að meta þá þætti sem mest áhrif hafa á samkeppnishæfni ferðamannastaða með spurningalista. \nNiðurstöður benda til þess að lækningatengd ferðaþjónusta sé að mörgu leyti samkeppnishæf atvinnugrein hér á landi. Marga styrkleika má finna innan demantsins en ákveðnir veikleikar draga hins vegar úr samkeppnishæfni greinarinnar. Helstu veikleikar geta þó verið tímabundnir. Atvinnugreinin er ung og samvinna lítil enn sem komið er. Klasinn er því grunnur og fremur lítið þróaður. Klasamyndun er á frumstigi en hefur mikil tækifæri til vaxtar á næstu árum. Þá benda niðurstöður til þess að styrkleikar íslenskrar ferðaþjónustu séu íslensk náttúra, afþreyingarmöguleikar, aðgengileiki, ímynd og almennir innviðir. \nLækningatengd ferðaþjónusta getur orðið mjög samkeppnishæf grein hér á landi og eflt samkeppnishæfni þjóðarinnar til lengri tíma. Greinin býr yfir miklum styrkleikum og getur átt mikla möguleika í framtíðinni.
Source: Skemman
Author: Hólmfríður Rós Eyjólfsdóttir 1976
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7061937824
Cites: 43
Cited by:
Related to: 10