Work

Spilahegðun og algengi spilavanda meðal fullorðinna Íslendinga árið 2017

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Könnuð var spilahegðun og algengi spilafíknar og spilavanda á meðal fullorðinna Íslendinga (18-70 ára) árið 2017. Fyrri hluti lokaverkefnisins inniheldur fræðilega umfjöllun (e. literary review) þar sem stuttlega er farið yfir sögu peningaspila og helstu hugtök skilgreind. Að því loknu er fjallað um niðurstöður rannsókna á spilahegðun og algengi spilavanda, bæði hérlendis og erlendis. Í framhaldi er fjallað um þá þætti sem rannsóknir sýna að hafi tengsl við spilavanda. Bæði verður fjallað um helstu áhættuþætti spilavanda en áhersla verður lögð á þá þrjá þætti sem voru skoðaðir sérstaklega í þessari rannsókn; það eru áfengisvandi, streita og svefnvandi. Að lokum verður fjallað um helstu markmið og niðurstöður rannsóknar sem er framsett í formi handrits að grein. Niðurstöður könnunar frá 2017 er að finna í seinni hluta verkefnisins sem er sett upp í handriti.
Source: Skemman
Author: Birgir Örn Steinarsson 1976
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7061962278
Cites: 73
Cited by: 1
Related to: 10