Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Áhersla á rétt barna til þátttöku í málum sem þau varða hefur aukist á síðustu árum. Í samræmi við bernskufræði og Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna eru börn sjálfstæðir þátttakendur í eigin lífi með hæfni til að hafa áhrif á umhverfi sitt og eiga rétt á vernd, virðingu og þátttöku í ákvörðunum sem varða þeirra líf. Réttindi barna til þátttöku eru sérstaklega mikilvæg í barnaverndarþjónustu, þar sem sjónarmið þeirra ættu að vera virt og hagsmunir þeirra í forgrunni. Rannsóknir sýna þó að þátttaka barna sem njóta stuðnings barnaverndarþjónustu er oft takmörkuð í framkvæmd. Skapandi aðferðir veita börnum rými til að tjá tilfinningar og reynslu sína á fjölbreyttan og einstaklingsmiðaðan hátt, sem styður félagsráðgjafa í að mæta þeim á þeirra eigin forsendum. Notkun skapandi verkfæra getur því verið nauðsynleg til að styðja við tjáningu og þátttöku barna. Tilgangur rannsóknarinnar var að varpa ljósi á hvernig skapandi vinnulag í félagsráðgjöf geti dýpkað skilning á stöðu barna og stuðlað að aukinni þátttöku í málefnum sem þau varða. Markmiðið var að skoða reynslu félagsráðgjafa í barnaverndarþjónustu af notkun skapandi leiða í viðtölum við börn. Leitað var svara við hver reynsla félagsráðgjafa í barnaverndarþjónustu er af notkun skapandi leiða í viðtölum við börn, með sérstakri áherslu á hvernig tilfinningaspil nýtast sem skapandi verkfæri til að styðja við tjáningu og þátttöku barna. Rannsóknin byggði á eigindlegri aðferð og viðtölum við sex félagsráðgjafa í barnaverndarþjónustu. Niðurstöður gáfu vísbendingar um að þátttakendur skorti þjálfun og stuðning í að nýta skapandi leiðir í starfi. Niðurstöður sýndu sömuleiðis að með notkun tilfinningaspila má auðvelda börnum að tjá tilfinningar sínar og stuðla að virkari þátttöku þeirra á eigin forsendum. Til að styðja félagsráðgjafa í að nýta skapandi verkfæri er brýnt að efla fræðslu og þjálfun í námi og starfi og bæta aðgengi að íslenskri útgáfu skapandi verkfæra fyrir félagsráðgjafa.
Source: Skemman
Author: Linda Sóley Birgisdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7061968140
