Work

Sjávarspendýr og fuglar sem meðafli í grásleppunet : sjálfbærni grásleppuveiða og afturköllun MSC vottunar

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Grásleppuveiðar við Ísland fengu svokallaða MSC sjálfbærni vottun sína árið 2015 en vottunin var afturkölluð árið 2018. Grundvöllur afturköllunarinnar var skýrsla sem Hafrannsóknastofnun gaf út sem sýndi að meðafli á nokkrum tegunda fugla og spendýra var umfram viðmiðunarmörk um sjálfbærni. Ráðist var í heimildaleit á rannsóknum sem gerðar hafa verið á óæskilegum meðafla á grásleppuveiðum til þess að kanna grundvöll ákvörðunarinnar í þeim tilgangi að svara því hvort grásleppuveiðar séu sjálfbærar eða ekki. Einnig var heimilda leitað um þær rannsóknir sem gerðar hafa verið til þess að minnka óæskilegan meðafla í net og aðrar fljótlegri leiðir. Svo sem betri skráningar á meðafla í afladagbækur, tímabundnar svæðislokanir og bann veiða á ákveðnu dýpi. Niðurstöðurnar eru að meðaflamat Hafrannsóknastofnunar virðist í sumum hlutum skýrslunnar ofreiknað, það sama má segja um skýrslu Biopol. Sumir uppreikningar sýndu til dæmis að um 30% stofns útsels væri veiddur sem meðafli í grásleppunet. Umfang meðafla er samt talsvert og mikilvægt er að gera ráðstafanir svo grásleppuveiðar geti endurheimt MSC vottun sína. Ef stefna á að því þarf að auka rannsóknir og bæta skráningu sjómanna svo hægt sé að fá nákvæmara mat á umfangi meðafla og þar með sjálfbærni grásleppuveiða. Mikilvægt er einnig að leitað verði leiða til að lágmarka meðafla en fljótvirkasta leiðin í því samhengi væri að auka sóknarstýringu með því að takmarka veiðar á þeim svæðum og dýptarbilum sem mest er um meðafla. Þá væri einnig æskilegt að prófa hér á landi aðrar aðferðir sem gefið hafa vísbendingar um góðan árangur til að minnka meðafla, svo sem ljós á höfuðlínu neta. \nLykilorð: Hrognkelsi, meðafli, sjálfbærni, MSC vottun, meðaflafælur
Source: Skemman
Author: Bergur Jónmundsson 1990
Language: Icelandic
Subfield: Aquatic Science
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7061971026
Cites: 12
Cited by:
Related to: 10