Work

Sjálfskilningur hreyfihamlaðra ungmenna. Þýðing útlits fyrir merkingu fötlunar

Year: 2010
Type: dissertation
Abstract: Ritgerðin fjallar um mótun sjálfskilnings ungs hreyfihamlaðs fólks og þá þýðingu sem sýnileg skerðingin hefur fyrir sjálfsmynd þeirra og samfélagslega þátttöku. Hún beinir athyglinni að nýjum skilningi á merkingu fötlunar, þar sem gengið er út frá áhrifum ásýndarinnar á líf fatlaðs fólks. Niðurstöðurnar byggjast á eigindlegri rannsókn sem var unnin á árunum 2008–2010. Hún beindist að reynslu 11 þátttakenda á aldrinum 18–40 ára og frásögnum fjölda annarra ungmenna á samskiptasíðum og bloggfærslum. Þær gefa til kynna að útlitslegur þáttur skerðingarinnar gegni veigamiklu hlutverki í upplifun ungs hreyfihamlaðs fólks á fötlun. Merking fötlunar í lífi þeirra fer að gæta þegar félagslegt vægi líkamans eykst við unglingsaldurinn. Þá finna ungmennin að þau fylgja ekki þeim breytingum sem verða í lífi annarra unglinga. Ástæðurnar eru tvíþættar; annars vegar aukin íhlutun fagfólks vegna læknisfræðilegrar greiningar á skertri færni, og hins vegar viðhorf og viðbrögð almennings til ásýndar skerta líkamans. Þetta veldur tilfinnalegri sálarkreppu á unglingsárunum, sem annaðhvort brýst út uppreisn gegn afskiptum annarra eða lognast út af í sjálfsefjun um að vera öðrum háð. Í uppreisn hreyfihamlaðra ungmenna gegn fötlunarstimplinum má greina djúpstæðari merkingu á fötlun en þá sem er þekkt innan fötlunarfræðinnar. Þar kemur í ljós að útlitsleg áhrif skerðingarinnar á líkamsímynd og kynverund eru ráðandi þegar kemur að sjálfskilningi þeirra og sjálfsmynd.
Source: Skemman
Author: Eiríkur Karl Ólafsson Smith 1980
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062020140
Cites: 65
Cited by: 15
Related to: 10