Sofðu unglings ástin mín: Samantekt um svefn unglinga og úrræði hjúkrunarfræðinga
Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Staðalímyndin um syfjaða unglinginn er vel þekkt. Ástæðan er sú að unglingar um allan heim fá ekki nægan svefn og ná ekki þeim níu til tíu klukkustundum sem þeir þurfa á nóttu. Svefnvenjum íslenskra unglinga er sérstaklega ábótavant. Markmið þessa fræðilega yfirlits (literature review) var að taka saman niðurstöður rannsókna á svefni og svefnvenjum heilbrigðra unglinga og tengsl við líkamlega, andlega og félagslega þætti auk mögulegra úrlausna hjúkrunarfræðinga. Ástæður svefnleysis hjá unglingum geta verið meðal annars seinkun á dægursveiflu, raftækjanotkun fram eftir á kvöldin og neysla koffínbættra drykkja. Svefnskortur getur valdið auknum líkum á áhættuþáttum sjúkdóma, bæði geðsjúkdóma og annarra sjúkdóma. Einnig eru auknar líkur á dagsyfju, áhættuhegðun og lakari námsgetu. Svefnleysi unglinga er vanmetið vandamál. Aðferðir til úrræða hafa litið dagsins ljós, en fáar rannsóknir eru til sem styðja árangur þeirra. Seinkun á skólatíma, aukin hreyfing og foreldrastýrður háttatími eru dæmi um úrræði sem bera árangur. Skólahjúkrunarfræðingar eru í kjöraðstöðu til að hafa áhrif á svefn unglinga og gera það nú þegar hérlendis með fræðslu í grunnskólum. Huga þarf þó að fleiri leiðum til að hafa jákvæð áhrif á svefnvenjur unglinga, til dæmis með því að auka hópfræðslu ásamt því að virkja betur foreldra og skólayfirvöld. \n \nLykilorð: Svefn, svefnvenjur, unglingar, skólahjúkrun, heilsuefling
Source: Skemman
Authors: Elfa Ólafsdóttir 1988, Sólveig Halldórsdóttir 1989
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Sleep and related disorders
Subfield: Experimental and Cognitive Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062041408
