Work

Staða innleiðingar ábyrgra fjárfestinga hjá íslenskum stofnanafjárfestum

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Á undanförnum 20 árum hafa ábyrgar fjárfestingar, þar sem tekið er mið af umhverfis- og samfélagsmálum og stjórnarháttum við mat á fjárfestingakostum, verið í mikilli útbreiðslu og virðist ekkert lát vera þar á. Stofnanafjárfestar eru leiðandi í ábyrgum fjárfestingum í dag en innleiðing almennra fjárfesta á aðferðarfræðinni fer þó vaxandi. Mikil aukning hefur verið á erlendum rannsóknum varðandi ábyrgar fjárfestingar en ábyrgar fjárfestingar hafa lítið sem ekkert verið rannsakaðar hér á landi. \nÍ ljósi mikillar útbreiðslu og skorti á innlendum rannsóknum var markmið rannsóknarinnar að kanna hver staða innleiðingar hjá íslenskum stofnanafjárfestum er á ábyrgum fjárfestingum. Markmiðið var einnig að varpa ljósi á þá hvata sem stofnanafjárfestar upplifa fyrir auknum áherslum á ábyrgar fjárfestingar og þær hindranir sem tengjast innleiðingu á aðferðarfræðinni. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferðarfræði þar sem tekin voru tíu viðtöl við stjórnendur í eignastýringu banka, vátryggingafélaga og lífeyrissjóða auk stjórnarmanna í fyrrnefndum stofnunum. \nHelsta niðurstaða rannsóknarinnar hvað varðar viðmið og aðferðir sem notaðar eru af stofnanafjárfestum leiðir í ljós að flestir eru á byrjunarreit þegar kemur að innleiðingu á stefnu og aðferðum varðandi ábyrgar fjárfestingar. Það er mat viðmælenda að meirihluti stofnanafjárfesta séu að taka fyrstu skrefin í átt að innleiðingu á ábyrgum fjárfestingum. Þrátt fyrir að vitundarvakning hafi orðið í samfélaginu um umhverfis- og samfélagsleg málefni virðist enn bera á skorti á þekkingu í málaflokknum. Lykilatriði er að stjórnarmenn og stjórnendur séu vel upplýstir um mikilvægi ábyrgra fjárfestinga þar sem ákvörðunarvaldið liggur hjá þeim, auk þess sem þeir þurfa að leiða innleiðingarferlið. Niðurstöðurnar sýna því bæði hvað drífur stofnanafjárfesta áfram og hvað dregur úr þeim varðandi áherslur á ábyrgar fjárfestingar og gætu því reynst gagnlegar bæði stjórnendum og fræðimönnum á þessu sviði.
Source: Skemman
Author: Ninna Stefánsdóttir 1989
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062042107
Cites: 65
Cited by: 2
Related to: 10