Work

Skólaforðun grunnskólabarna : vaxandi áskorun

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Undanfarið hefur skólaforðun verið í umræðunni hér á landi. Skólaforðun er tiltölulega nýtt hugtak yfir vandamál sem þó er ekki nýtt. Sum börn eiga erfitt með að mæta í skóla, til lengri eða skemmri tíma, og er líklegasta ástæðan talin vera vegna andlegrar vanlíðanar eins og kvíða, þunglyndi eða annarra sálrænna sjúkdóma og er þessi hegðun barna og ungmenna skilgreind sem skólaforðun. Markmið þessarar rannsóknarritgerðar er að auka þekkingu á skólaforðun með fræðilegri upplýsingasöfnun. Kannaðar eru birtingarmyndir hennar og hvaða úrræði eru í boði til að draga úr líkum á skólaforðun. Leitað var svara við eftirfarandi rannsóknarspurningum: Hvernig birtist skólaforðun sem rekja má til vanlíðanar, hver er tíðni hennar og afleiðingar? Hvernig er hægt að bregðast við heima og í skólanum til að draga úr skólaforðun? Niðurstöður sýndu að engin opinber viðmið er að finna um skólasókn í grunnskólum á landinu og því engin fyrirliggjandi gögn um það hversu mörg börn og ungmenni forðast skóla. Starfsfólk skóla þarf að koma auga á nemendur sem sýna einkenni skólaforðunar og er snemmtæk íhlutun áhrifaríkust til þess að koma í veg fyrir frekari afleiðingar. Samstarf skóla og heimilis er einnig mikilvægur þáttur. Mikilvægt er að stuðla að geðrækt og auka þátt þess í skólastarfi. Börn og ungmenni eru okkar framtíð og mikilvægt að stuðla að farsælli skólagöngu og almennri vellíðan.
Source: Skemman
Author: Steinunn Ólafsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062070369
Cites: 24
Cited by:
Related to: 10