Work

"Scold your wife sharply, bully and terrify her" : Áhrif trúarbragða á stöðu kvenna

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Markmið ritgerðarinnar er að rýna í samband trúarbragða og kynjamisréttis. Stuðst verður m.a. við hugmyndir Émile Durkheim, Ian C. Jarvie og Edward Tylor um trúarbrögð og upphaf þeirra. Trúarbrögð hefur verið afar miðlægt rannsóknarefni innan mannfræðinnar enda eiga þau stóran þátt í að móta samfélög og menningar. Hins vegar hefur verið afar erfitt að skilgreina hugtakið „trúarbrögð“ á fullnægjandi hátt, en trúarbrögð eru afar fjölbreytt og marglaga, og ekki iðkuð á sama hátt alls staðar og því skiljanlegt að mannfræðingar og aðrir vísindamenn hafa staðið frammi fyrir erfiðleikum við að skilgreina þau öll undir eitt og sama hugtakið. Trúarbrögð hafa fylgt mannkyninu í aldaraðir en einnig kynjamisrétti, þó á mismunandi hátt eftir stöðum og tíma. Stuðst verður við hugmyndir Sherry B. Ortner, Henrietta Moore og Simone de Beauvoir um femínisma, en Ortner segir kynjamisrétti vera alþjóðlegt vandamál sem er svo rótgróið að erfitt reynist að koma á fullu jafnrétti meðal kynja. Til að reyna að varpa ljósi á það hvers vegna kynjamisrétti sé til staðar verða rit þriggja stærstu trúarbragða heims skoðuð, kristni, íslam og hindúisma, og hvernig fjallað er um konur í þeim ritum. Trúarbrögð og trúarlegar iðkanir má finna í nánast öllum samfélögum heims og hafa orð í heilögum ritum verið notuð til að réttlæta sem og viðhalda kynjamisrétti. Út frá þeim pælingum verður einnig samband trúarbragða og mannréttinda skoðað en það samband er gífurlega flókið og stórt viðfangsefni að takast á við. Í sameiningu reyna þessir þættir að koma okkur nær svari við rannsóknarspuningunni hvort trúarbrögð hafa áhrif á menningarlegan mun karla og kvenna og því kynjamisrétti sem er til staðar í heiminum.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062137173
Cites: 26
Cited by:
Related to: 10