Skynjaður ávinningur og skynjuð áhætta þess að versla af Internetinu: Skiptir vöruflokkur máli?
Year: 2017
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Netverslun hefur aukist mikið á síðustu árum. Þar sem æ fleiri kaupa vörur af Internetinu er orðið mikilvægara gera sér grein fyrir kauphegðun neytenda þar. Það að skilja markhópinn sinn og hvernig hann verslar getur skipt sköpum þegar vefverslun er sett upp og markaðssett. \nSkynjaður ávinningur og skynjuð áhætta eru mikilvægir þættir í kauphegðun neytenda þegar kemur að verslun á Internetinu. Þessir þættir hafa verið rannsakaðir þónokkuð með tilliti til netverslunar, en eingöngu á almennum nótum í flestum tilvikum, þ.e. óháð vöruflokki. Þær rannsóknir sem hafa haft vöruflokka til skoðunnar hafa einungis gert það með tveimur flokkum eða þá aðeins skoðað skynjaða áhættu út frá nokkrum vöruflokkum. Þessar fyrri rannsóknir hafa bent til þess að vöruflokkur skiptir máli. Því getur verið hagnýtt að skoða skynjaðan ávinning og skynjaða áhættu út frá fleiri vöruflokkum en hefur verið gert, til þess að vefverslanir geti hagað markaðsfærslu sinni betur eftir því hverskonar vörur þær eru að selja. \nMarkmið rannsóknarinnar var því að sjá hvort að skynjaður ávinningur og skynjuð áhætta af því að versla af Internetinu, væri mismunandi eftir því um hvaða vöruflokk væri að ræða. Einnig var markmiðið að vita hvort að reynsla af því að versla af Internetinu hefði áhrif á skynjun þessara þátta. Því var megindleg rannsókn framkvæmd þar sem rafrænn spurningalisti, byggður á tveimur fyrri rannsóknum, var sendur út í gegnum samskiptamiðilinn Facebook. \nNiðurstöður rannsóknarinnar styðja að mestu leyti við fyrri rannsóknir. Mun var þó að finna á milli vöruflokka í skynjaðri áhættu, þá sérstaklega í víddinni áhætta tengd frammistöðu vöru sem leiðir líkur að því að fólk hefur mestar áhyggjur af því að varan muni ekki uppfylla væntingar. Reynsla virðist ekki hafa áhrif á skynjaða áhættu, sem er ekki í samræmi við fyrri rannsóknir. Engan mun var að finna á milli vöruflokka þegar kom að skynjuðum ávinning. Meiri reynsla af vefverslun virðist auka skynjaðan ávinning neytenda.
Source: Skemman
Author: Jónína Erna Gunnarsdóttir 1987
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Law
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062187510
