Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Á síðustu áratugum hefur umræðan um loftslagsbreytingar og skelfilegar afleiðingar þeirra verið áberandi í samfélagi okkar. Umræðan hefur verið mikið hitamál þar sem bæði hefur verið rökrætt um hvort loftslagsbreytingar séu af mannavöldum eður ei, og jafnvel hvort þær séu raunverulegar yfirhöfuð. Afleiðingar þeirra eru farnar að sjást fremur skýrt út um alla jörð og verður fólk fyrir barði þeirra nú þegar. Loftslagsbreytingar eru samofnar kynjakerfinu og verður tenging þeirra reifuð, en þessi ritgerð skoðar hina flóknu samþættingu vistfemínisma, loftslagsbreytinga og kynjatengsla. Leitast er við að komast að því hvort vistfemínismi geti útvegað mögulega innsýn og lausnir til þess að taka á vandamálinu sem loftslagsbreytingar og kynjakerfið eru, þar sem sérstök áhersla er lögð á hvalveiðar á Íslandi. \nMarkmið ritgerðar er að bæta vitneskju um málefnið og tengja vistfemínisma við hvalveiðar á Íslandi. Niðurstöður ritgerðar sýna fram á margþætta tengingu m.a. á milli kynjakerfisins, loftslagsbreytinga, kapítalisma, nýfrjálshyggju og nýlenduhyggju. Þessi tenging undirstrikar áherslur vistfemínisma og samþættingu stefnunnar við hvalveiðar á Íslandi.
Source: Skemman
Author: Birta Ísey Brynjarsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Literature and Literary Theory
Field: Arts and Humanities
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062193231
