Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð verður fjallað um ofbeldi í nánum samböndum. Farið verður yfir skilgreiningar, áhættuþætti, löggjöf og þróun löggjafar í ofbeldismálum. Istanbúlsamningurinn verður kynntur og þær breytingar sem urðu við tilkomu hans. Tíðni ofbeldis í nánum samböndum verður skoðuð og kynnt nokkur af þeim úrræðum sem eru í boði á Íslandi fyrir þolendur og gerendur ofbeldis. Einnig verður farið yfir ýmsar rannsóknir tengdar ofbeldi. Rauði þráðurinn í ritgerðinni er „átta stiga tímalína sem leiðir að morði“ sem doktor Jane Monckton Smith hefur sett fram og einnig er fjallað um þvingunarstjórnun og tengdar kenningar.
Source: Skemman
Author: Nikólína Ósk Rúnarsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Health
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062199139
