Work

Tengsl hreyfingar og námsárangurs

Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Flestir vita að hreyfing hefur jákvæð áhrif á andlega og líkamlega líðan barna og ungmenna en það sem færri vita er að hreyfing getur einnig haft áhrif á námsárangur þeirra. Ritgerð þessi fjallar um tengsl hreyfingar og námsárangurs hjá grunnskólabörnum. Um er að ræða heimildaritgerð þar sem notast var við fræðilegar heimildir. Niðurstöður sýna að hreyfing getur haft jákvæð áhrif á námsárangur nemenda og þá sérstaklega miðlungs erfið hreyfing sem reynir á þolið. Rannsóknirnar sýna að fjölbreytt hreyfing getur haft jákvæð áhrif á námsárangur; hjóla í skólann, leika úti í frímínútum, skólaíþróttir, leika sér úti eftir skóla og fara á íþróttaæfingu. Það má telja líklegt að það komi ekki niður á námsárangri í bóklegum greinum, ef hreyfing er aukin á skólatíma og bóklegum tímum jafnvel fækkað. Mikilvægt er að upplýsa skólasamfélagið og foreldra um þessi tengsl, því sífellt er verið að leitast við að ná betri árangri í skólastarfinu. Á sama tíma eru börn og ungmenni að hreyfa sig minna og minna sem hugsanlega getur leitt til lakari námsárangurs.
Source: Skemman
Author: Jane Petra Gunnarsdóttir 1977
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062334595
Cites: 32
Cited by:
Related to: 10