Work

Svefn: áhrif svefnraskana á minni

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Í þessari heimildaritgerð er fjallað um hvaða áhrif svefnraskanir hafa á minni. Jafnframt er fjallað almennt um svefn og minni. Svefn er lífsnauðsynlegur, bæði fyrir líkamlega- og andlega heilsu og vellíðan. Á síðustu áratugum hefur svefn- og minnisrannsóknum fleygt fram. Almenningur er orðinn meira meðvitaður en áður um hvað svefn gegnir mikilvægu hlutverki. Rannsóknir hafa sýnt tengsl á milli ýmsa heilsukvilla og svefnleysis. Í marga áratugi hefur því verið haldið fram að ein helsta líffræðilega forsenda svefns sé minnisfesting. \nMarkmið ritgerðarinnar er að athuga hvaða áhrif svefnraskanir hafa á minni. Fjallað verður ítarlega um eftirfarandi svefnraskanir: Svefnleysi, drómasýki, kæfisvefn og banvænt ættgengt svefnleysi. \nHelstu niðurstöður þessarar ritgerðar eru að svefnraskanir hafa áhrif á minni. Svefnleysi veldur verri minnisfestingu bæði fyrir skammtíma- og langtímaminni í hægbylgjusvefni og REM-svefni. Einnig getur svefnleysi leitt til aukningar á Beta amyloid í heila- og mænuvökva sem getur valdið truflun á taugamótsvirkni og minnkun á taugaboðferlum. Orsakir losunar tau- próteina getur leitt til taugafrumutaps og taugahrörnunar sem útskýrir samband á milli svefnleysis og Alzheimers. Drómasýki veldur vægu tapi á yrtu minni og auknar líkur eru á gleymsku hlutfalli. Um helmingur einstaklinga með drómasýki kvartar yfir að upplifa minnisleysi. Kæfisvefni veldur truflun á endurheimtandi ávinningi svefns og orsakar eyðileggingu á efnabyggingu á frumustigi sem hefur þær afleiðingar að það hefur áhrif á virkni drekans og framheilans. Einstaklingar með kæfisvefn hafa verra atburðarminni og yrt minni. Áhrif banvæns ættgengs svefnleysis á minni er að það verður minnistap, sérstaklega í vinnsluminni. Vitrænar skerðingar valda heilabilun sem leiðir einstakling til dauða. Samt sem áður hafa svefnhegðunarraskanir meðal annars næturógnir, svefnganga eða atferlisröskun tengd REM-svefni ekki nein áhrif á minnisfestingu hjá einstaklingum.
Source: Skemman
Author: Þóra Kristín Ragnarsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7062338912
Cites: 49
Cited by:
Related to: 10